Greiðslustöðvun afturkölluð til að lágmarka tjón 6. febrúar 2009 12:59
Ákvörðun um að afturkalla beiðni um greiðslustöðvun hjá BG Holding hér á landi var tekin til að lágmarka tjón í rekstri fyrirtækja í eignasafni Baugs. Ákvörðunin um afturköllun beiðni BG Holding mun engin áhrif hafa á aðrar umsóknir Baugs eða dótturfélaga þess. Stjórnir Baugs Group hf ("Baugur") og BG Holding ehf ("BG Holding") ákváðu að andmæla ekki beiðni Landsbanka Íslands hf um greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi sem tekin var fyrir hjá breskum dómstól High Court of Justice fyrr í dag. Þá hefur verið ákveðið að draga til baka beiðni um heimild BG Holding til greiðslustöðvunar félagsins hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. "Í kjölfar hruns íslensku bankanna, hefur forgangsverkefni okkar verið að vernda félögin í eignasafninu og að lágmarka truflun á rekstri félaganna sem og óþægindi fyrir starfsmenn og aðra hagsmunaðila," segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group í tilkynningu um málið. „Ákvörðun Landsbanka Íslands var okkur mikil vonbrigði. Að okkar mati voru tillögur okkar að endurskipulagninu traustar og til þess fallnar að hámarka endurheimtur verðmæta fyrir alla hagsmunaðila Baugs og dótturfélaga þess. Með tilliti til hagsmuna félaganna í eignasafni okkar, höfum við ákveðið að andmæla ekki greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi og munum vinna með skilanefnd Landsbankans og veita allan mögulegan stuðning til fyrirtækjanna. Eignasafnið inniheldur sterk vörumerki og frábær stjórnendateymi, sem eru vel í stakk búin til að byggja á styrkleikum sínum um komandi ár."
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Sjá meira