Seðlabankinn bakvið þriðjung af gjaldeyrissölunni 6. febrúar 2009 11:58
Hrein sala Seðlabankans á gjaldeyri á markaði nam 1,3 milljörðum kr. í janúar og samsvarar það tæpum þriðjungi af heildarveltu á millibankamarkaði með gjaldeyri í mánuðinum. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta hlutfall var áþekkt í desember, en þá nam hrein sala bankans á gjaldeyri 3,4 milljörðum kr. af 10,5 milljarða kr. heildarveltu. Seðlabankinn hefur þó ágætt borð fyrir báru þrátt fyrir söluna í janúar þar sem gjaldeyrisforði hans nam 429 milljörðum kr. um áramótin. Einnig mun vopnabúr bankans væntanlega gildna frekar á næstunni þegar lán nágrannaþjóða auk næstu útborgunar á láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skila sér í gjaldeyrisforðann. Velta á millibankamarkaði eftir bankahrunið er raunar aðeins lítið brot af veltunni eins og hún var að jafnaði misserin fyrir hrun. Fyrstu níu mánuði ársins var veltan að jafnaði 813 milljarðar kr. á mánuði. Dagsvelta fyrir hrun var þannig að jafnaði u.þ.b. fimmfalt meiri en mánaðarveltan hefur verið að meðaltali síðan viðskipti á millibankamarkaði hófust að nýju í desemberbyrjun. Vert er þó að hafa í huga að millibankamarkaður endurspeglar aðeins hluta gjaldeyrisviðskipta þar sem bankar og fjármálastofnanir leitast við að leiða saman kaupendur og seljendur án þess að leita á millibankamarkaðinn. Þá daga sem jafnvægi er milli kaupenda og seljenda getur því verið afar takmörkuð velta á millibankamarkaði en gjaldeyrisviðskipti í heild þó verið lífleg.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira