Þrjú tilboð bárust í Morgunblaðið Breki Logason skrifar 20. febrúar 2009 14:14 Höfuðstöðvar Morgunblaðsins
Þrjú tilboð bárust í Árvakur, Útgáfufélags Morgunblaðsins, en frestur til þess að skila inn tilboðum rann út klukkan 14:00 í dag. Óskar Magnússon fer fyrir einum af hópunum en hann skilaði inn tilboði á síðustu stundu. Hann segir tilboðið sanngjarnt og raunhæft. „Þetta er nú ekkert leynifélag og það verður ekkert leyndarmál hverjir standa að þessu tilboði með mér. Ég hef hinsvegar ákveðið að segja ekki frá því nema tilboðinu verði tekið. Eignarhald á tilboði á ekki að skipta neinu máli en eignarhald á fjölmiðli kann að skipta máli," segir Óskar aðspurður hverjir standi að tilboðinu. Hann segir að fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sem er með Árvakur í söluferli eigi að taka afstöðu til tilboðanna fyrir klukkan 17:00 á mánudag. „Ég held að þetta sé sanngjarnt og eðlilegt tilboð, sem sé raunhæft og aðgengilegt fyrir seljandanna," segir Óskar sem vill ekki nefna neinar tölur í því sambandi. Fjórir hópar fengu að gera skuldbindandi tilboð í Árvakur. Samkvæmt heimildum Vísis skiluðu Vilhjálmur Bjarnason og félagar í Almenningshlutafélagi um Morgunblaðið einnig inn tilboði. Það gerði ástralski fjárfestirinn Steve Cosser líka. Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson sem fara fyrir fjórða hópnum gerðu ekki tilboð í Morgunblaðið eins og haldið var fram í þessari frétt fyrr í dag. Leiðréttist það hér með.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira