Vill heimild til að skipta upp markaðsráðandi fyrirtækjum Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 14. október 2009 12:13
Formaður Neytendasamtakanna hvetur viðskiptaráðherra til að rýmka heimildir Samkeppniseftirlitsins til að mæla fyrir um uppskiptingu fyrirtækja sem þykja misnota markaðsráðandi stöðu. Það eru engin ný tíðindi að Hagar sem rekur meðal annars Hagkaup, Bónus og 10 11 séu langstærstir á íslenskum matvörumarkaði. Félagið hefur árum saman verið risinn á matvörumarkaði og selur þjóðinni um 50% af öllu því sem hún kaupir í matinn. Samtals reka Hagar 61 matvöruverslun á landinu. Næst stærsta fyrirtækið er Kaupás, sem rekur meðal annars Nóatún, Krónuna, Kjarval og Ellefu ellefu verslanirnar og er með 22% af matvörumarkaðnum. En ástæða þess að umræðan kviknar nú er að Jón Gerald Sullenberger er að smeygja sér inn á þennan markað lágvöruverðsverslana og hefur gagnrýnt harðlega það umhverfi sem hér ríki á matvörumarkaði sem hann telur að hamli eðlilega samkeppni. Einkum hefur hann gagnrýnt hið opinbera fyrir að hafa leyft þennan vöxt óhindrað og segir þau hafa brugðist bæði birgjum og neytendum. Jón Gerald telur nauðsynlegt að skipta upp Högum og forstjóri Samkeppniseftirlitsins sagði í fréttum okkar í gær að ef fengist rýmri heimild inn í samkeppnislög til að mælast til þess að fyrirtækjum yrði skipt upp sem talin eru skaðleg samkeppni með tilvist sinni á markaði - þá yrðu Hagar meðal þeirra fyrirtækja sem líklega yrðu skoðuð. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna vill líka slíka heimild í lög.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira