Skulda Straumi rúma 9 milljarða vegna landakaupa á Spáni 5. september 2009 18:26
Fasteignafélag, í eigu Róberts Wessman og Björgólfs Thors Björgólfssonar, skuldar Straumi rúma 9 milljarða vegna landakaupa á La Manga á Spáni. Óvíst er hvort gengið verði að persónulegum veðum sem hlaupa á milljörðum íslenskra króna. Róbert Wessman og Björgólfur Thor Björgólfsson keyptu fyrir fáeinum árum í gegnum félag sitt, AB Capital, allt byggingarland í kringum La Manga klúbbinn á suður Spáni og hugðust byggja þar. Stuttu eftir að gengið hafði verið frá kaupunum kom upp spillingarmál í tengslum við veitingu á byggingarleyfum. Eftir það hafa engin byggingarleyfi verið gefin út á þessu svæði og áætlanir þeirra félaga frestuðust því. Í samtali við fréttastofu í mars sl. sagði Róbert að samningur hefði náðst milli AB Capital og La Manga klúbbsins sem fól í sér að klúbburinn myndi sjá um byggingarleyfi og heildarskipulag á byggingarsvæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki enn búið að ganga frá þessum samningi. Kaupin á landinu voru fjármögnuð með lánum frá Landsbankanum, Glitni og Straumi. Samkvæmt uppgjöri Straums frá fjórða ársfjórðungi síðasta árs má sjá að bankinn lánaði 53 milljónir evra til verkefna á Spáni, eða rúman 9,5 milljarð íslenskra króna. Eftir því sem fréttastofa kemst næst var verkefni þeirra Róberts og Björgólfs það eina sem bankinn fjármagnaði á Spáni. Samkvæmt heimildum fréttastofu nemur persónuleg ábyrgð Róberts 33 milljónum evra eða tæpum 6 milljörðum íslenskra króna hjá bankanum. Ekki fengust upplýsingar um hvort Björgólfur Thor er í persónulegri ábyrgð fyrir láninu og þá hversu há hún er. Hjá Salt Investment, félagi í eigu Róberts, fengust þær upplýsingar að óvissa ríki um hvað verður um lánin og hvort gengið verði að persónulegum ábyrgðum Róberts. Engar upplýsingar fengust um málið frá skilanefnd Straums aðrar en þær að verið sé að vinna að því að ná sem mestum verðmætum út úr kröfunum sem bankinn á.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Sjá meira