Velferðarútgjöld hafa aukist verulega frá 1980 19. október 2009 09:31
Heildarútgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr tæplega 5,7% af landsframleiðslu árið 1980 í ríflega 8,9% af landsframleiðslu 2008, en það samsvarar 132 milljörðum króna á því ári. Hafa velferðarútgjöldin ríflega þrefaldast að magni á tímabilinu (220% vöxtur) miðað við verðvísitölu samneyslu og ríflega tvöfaldast á mann (129% vöxtur). Árið 2008 runnu 413 þúsund krónur til þessa málaflokks á mann samanborið við 181 þúsund krónur í byrjun níunda áratugarins á verðlagi 2008. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar en út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum heilbrigðis-, félags- og dómsmál um almannatryggingar og velferðarmál. Í ritinu er gefið yfirlit um útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála samkvæmt COFOG-flokkunarkerfi Sameinuðu þjóðanna. Undir þann málaflokk falla ýmsar félagslegar tilfærslur til einstaklinga, s.s. vegna elli, örorku, veikinda, tekjumissis, fæðinga og atvinnuleysis, og ýmis velferðarþjónusta, einkum við börn, aldraða og fatlaða. Útgjöld hins opinbera vegna almannatrygginga og velferðarmála eru greind niður í níu meginundirflokka. Útgjöld til fjölskyldna og barna er umfangsmesti útgjaldaliðurinn, en til þess málaflokks runnu rúmlega 37,6 milljarðar króna 2008, eða 2,5% af landsframleiðslu. Hækkunin milli ára nam 4 milljörðum króna. Útgjöld vegna örorku og fötlunar námu 34,9 milljörðum króna og hækkuðu um 6,6 milljarða króna milli ára. Þá námu útgjöld vegna öldrunar 33,1 milljarði króna og hækkuðu um 4 milljarða króna milli ára. Framlög vegna atvinnuleysis voru 5,4 milljarðar króna 2008 og hækkuðu um 2,3 milljarða króna frá fyrra ári. Útgjöld til félagsverndar árið 2008 námu 325,6 milljörðum króna eða 22,1% af landsframleiðslu. Um 40% útgjaldanna 2008 voru vegna slysa og veikinda (heilbrigðismála), en það samsvarar ríflega 8,8% af landsframleiðslu. Til verkefna vegna öldrunar fóru rúmlega 22% útgjaldanna eða 4,9% af landsframleiðslu. Þá vógu útgjöld vegna örorku og fötlunar og sömuleiðis fjölskyldna og barna þungt, en ríflega 13% útgjalda til félagsverndar runnu til hvors verkefnasviðs eða 2,9% af landsframleiðslu. Til fyrrgreindra fjögurra verkefnasviða runnu um 89% heildarútgjalda til félagsverndar. Samanburður á félagsvernd milli Norðurlanda og ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu sýna að árið 2006 ráðstöfuðu Svíar til dæmis 30,7% af landsframleiðslu sinni til félagsverndar og Danir 29%. Norðmenn aftur á móti 22,6%, Færeyingar 24% og Finnar 26,3%. Á því ári rann 21% landsframleiðslu hér á landi til félagsverndar eða 247 milljarðar króna. Á Evrópska efnahagssvæðinu runnu að meðaltali 26,9% af landsframleiðslu ríkja þess til félagsverndar árið 2006.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira