Innlent

Tvö til þrjú ár í fullt haftaleysi

Íslendingar geta verið lausir við gjaldeyrishöft eftir tvö til þrjú ár, að mati Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Lausleg áætlun um afnám haftanna var kynnt í gær.

Engar tímasetningar er að finna í áætluninni, fyrir utan að stefnt er að því að fyrsti þáttur áætlunarinnar komi til framkvæmda nokkru fyrir 1. nóvember. Í honum felst að losað verður um höft á innstreymi fjármagns, sem þýðir að erlendar fjárfestingar verða aftur mögulegar.

Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna fyrir fundinn í gær að endurreisn bankanna og stækkun gjaldeyrisvaraforðans stæði í vegi fyrir afnámi haftanna. Það er í samræmi við það sem fram kom á fundinum.

- sh /




Fleiri fréttir

Sjá meira


×