Gjaldeyrisverðmæti upp á 300 milljónir flæða um Norðfjarðarhöfn 27. ágúst 2009 12:23
Á sólarhring frá því síðustu nótt og fram á næstu nótt munu gjaldeyrisverðmæti upp á um 300 milljónir kr. flæða í gegnum Norðarfjarðarhöfn. Þetta kemur fram í grein sem Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. skrifar á vefsíðu fyrirtækisins í dag. Þar segir að starfsemi í frystihúsi Síldarvinnslunnar hf. hófst aftur í nótt eftir sumarfrí. Börkur NK kom með 900 tonn af síld til vinnslu í frystihúsinu. Bjarni Ólafsson er á landleið með 600 tonn af síld til vinnslu. Vilhelm Þorsteinsson EA, vinnsluskip Samherja hf., og Hákon EA, vinnsluskip Gjögurs hf., eru að landa fullunnum síldarafurðum í frystigeymslu Síldarvinnslunnar hf. samtals um 1.200 tonn af afurðum sem skiptast í síldarflök, heilfrysta síld og makríl. Áætluð verðmæti sem fara um höfnina þennan sólarhringinn eru um 300 milljónir. Makrílmeðafli hefur verið að aukast aftur hjá skipunum og eru skipin að landa núna 15-20% makríl sem meðafla. Vinnsluskipin eru að landa frosnum makríl að verðmæti um 40 milljónir en það er þrefalt meira verðmæti en ef honum væri landað til bræðslu. Sömu sögu er að segja af vinnslunni í landi en þar er reynt að frysta allan þann makríl sem hægt er. Því er brýnt að endurskoða sem fyrst gildandi reglur um meðaflaprósentu á síldveiðum svo flotinn stöðvist ekki og mikil verðmæti renni Íslendingum úr greipum.„Það er reyndar mjög undarleg staða að vera með jafn verðmætan fisk og makríl hérna við bæjardyrnar og geta ekki fiskað hann til manneldisvinnslu. Því skora ég á stjórnvöld að endurskoða strax gildandi reglur. Ég tel mjög mikilvægt að allt verði gert til að manneldisvinnsla um borð í vinnsluskipum og landvinnslum hérlendis geti haldið áfram," segir Gunnþór.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira