Pistill: Stjórnvöld virðast ekki ráða við verkefnið Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 27. maí 2009 11:20
Það verður skýrara með hverjum deginum að stjórnvöld virðast hreinlega ekki ráða við hið risavaxna verkefni að endurreisa efnahagslíf landsins og koma einhverjum stöðugleika á það að nýju. Nærtækasta dæmið er að ekkert af höfuðatriðum í samstarfsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) frá því í nóvember s.l. er enn komið á koppinn, sjö mánuðum síðar. Það liggur enn ekki fyrir áætlun um endurheimtur eigna gömlu bankanna. Þessu átti að vera lokið fyrir lok nóvember í fyrra. Áætlun um endurskipulagningu ríkisfjármála til næstu ára er enn ekki lokið en hún átti að liggja fyrir í árslok í fyrra. Það liggur enn ekki fyrir endurskoðun Fjármálaeftirlitsins á viðskiptaáætlunum nýju bankanna en henni átti að vera lokið fyrir 15. janúar s.l. Endurfjármögnun bankakerfisins er enn ekki lokið en hún átti að liggja fyrir í lok febrúar s.l. Endurskipulagning regluverks fjármálakerfisins er enn ekki lokið en átti að vera það í lok mars s.l. Sem skýring á þessu er oft nefnt að fyrri ríkisstjórn hrökklaðist frá völdum og kosningar voru haldnar í apríl s.l. og því hafi ekki gefist tími til að framkvæma alla þessa hluti. Það er sama og segja að mestan hluta fyrsta ársfjórðungs ársins hafi embættismannakerfi það sem vinna á grunnvinnuna hér bara sest niður og fitlað við sjálft sig þar til ljóst var hver myndi fara með völd eftir kosningarnar. Svo virðist sem einhver örvænting sé að grípa um sig innan ríkisstjórnarinnar og meðal aðila vinnumarkaðarins því ekki verður betur séð en verið sé að ræða í alvöru um að fastsetja gengi krónunnar. Hver sem lokið hefur hagfræði 101 veit að slíkt er eitthvert mesta bull sem enn hefur litið dagsins ljós í efnahagsumræðunni. Til að hægt sé að fastsetja gengið þarf Seðlabanki Íslands að eiga verulegan gjaldeyrisforða, svona ca. tífaldan á við það sem forðinn er í dag svo bankinn geti varið gengið. Og það myndi samt ekki duga nema í skamman tíma. Vilji menn sjá afleiðingar þess að halda genginu föstu er nærtækt að rifja upp hvernig fjárfestirinn George Soros snýtti Englandsbanka um rúmlega milljarð dollara árið 1992. Þetta gerðist í framhaldi af þrjósku breskra stjórnvalda við að láta af fastgengisstefnu sinni. Að lokum gafst Englandsbanki upp og fleytti genginu en ekki fyrr en milljarðar punda á milljarða ofan höfðu fossað út úr breska hagkerfinu. Hægt er að sjá upplýsingar um þetta m.a. á Wikipedia.org. Það er ljóst að stjórnvöld verða að taka mjög óvinsælar ákvarðanir til að koma fyrrgreindum atriðum í áætlun sinni og AGS til framkvæmda. Þar á meðal er einhver niðurskurður á velferðarkerfinu óhjákvæmilegur sem og skattahækkanir. Þetta hefur verið vitað frá upphafi en stjórnvöld hafa hummað þetta fram af sér hingað til. Nú verður hinsvegar ekki beðið lengur og t.d. mun næsta ákvörðun peningastefnunefndar um stýrivexti mótast af því hvort áætlun stjórnvalda um framtíðarstefnuna liggi fyrir eða ekki. Svo ekki sé talað um framtíð samstarfsins við AGS sem svo aftur er grunnurinn að frekari lánveitingum vinveittra þjóða til okkar.
Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira