Mjótt á mununum í stjórnarkjöri Byrs 13. maí 2009 20:33 Frá aðalfundi Byrs í dag.
Nú fyrir stundu lauk kosningu til stjórnar á aðalfundi Byr sparisjóðs á Nordica-Hilton hótelinu en um 800 stofnfjáreigendur voru mættir á fundinn. Í framboði voru tveir listar. Annarsvegar var það A listinn sem leiddur var af Sveini Margeirssyni og Herði Arnarssyni en hann er talinn vera fulltrúi grasrótarinnar í stofnfjárhópnum. Hinsvegar var það B listinn sem leiddur var af Jóni KR. Sólnes og talinn fulltrúi þeirra sem farið hafa með völdin í Byr. Mjótt var á mununum en B listinn fékk 48% greiddra atkvæða gegn 46% A listans. Þetta þýðir að B listinn fær þrjá menn í stjórn en A listinn einungis tvo. Þetta þýðir að þeir sem farið hafa með völdin í BYR halda velli en mikil átök hafa verið innan sparisjóðsins sem endurspeglaðist í miklum átökum á fundinum sem hófst klukkan 16:00 í dag. Það verða því þeir Jón Kr. Sólnes, Guðmundur Geir Gunnarsson og Matthías Björnsson sem verða í stjórn fyrir B listann og þeir Sveinn Margeirsson og Arnar Bjarnason fyrir A listann, en Arnar hefur verið nokkuð í fréttum undanfarið í tengslum við félag sitt Reykjavík Invest. Í varastjórn voru kjörnir þeir Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson fá B lista og Stefán Franklín fyrir A lista. Í fréttatilkynningu frá Byr sem barst í kvöld segir að á fundinum hafi spunnist miklar umræður um hrun íslenska fjármálakerfisins sl. haust og afkomu Byrs á síðasta ári. Fram kom í ræðu Ragnars Z. Guðjónssonar sparisjóðsstjóra að rekstraráætlun Byrs fyrir árið 2009 geri ráð fyrir jákvæðri afkomu og að þrátt fyrir ágjöfina ætti Byr mikla möguleika til að ná fyrri styrk á næstu árum. Hann sagði m.a.: „Forsenda endurreisnar íslensks efnahagslífs er tilvist sjálfstæðra fjármálastofnana sem geta stutt við heimilin og fyrirtækin í landinu. Forsenda þess að Byr geti veitt samkeppnishæfa þjónustu og gætt hagsmuna viðskiptavina sinna, er að fyllsta jafnræðis sé gætt í öllum aðgerðum stjórnvalda við endurreisn íslensks fjármálakerfis. Virk samkeppni fjármálafyrirtækja með dreift eignarhald er forsenda þess að fjárhagur lands og þjóðar rísi á heilbrigðum grunni.“ Atkvæði í stjórnarkjöri greiddu 633 og 5,14% seðla voru auðir. Fundinn sátu fulltrúar 78% virkra atkvæða en stofnfjáreigendur í Byr sparisjóði eru 1.512 talsins. Á fundinum var samþykkt að enginn arður yrði greiddur af stofnfé vegna síðasta árs og ekki nýtt heimild til endurmats stofnfjár samkvæmt 67. grein laga um fjármálafyrirtæki.
Tengdar fréttir Hiti á aðalfundi Byrs - erfiðasta ár í sögu sjóðsins Rúmlega 700 manns sitja aðalfund sparisjóðsins Byr sem hófst klukkan fjögur og stendur enn yfir. Þetta er átakafundur enda tapaði sparisjóðurinn 29 milljörðum á síðasta ári. Tveir listar eru þar að auki í framboði til stjórnar. 13. maí 2009 18:31 800 manns á aðalfundi Byrs Góð mæting er á aðalfund Byrs sem hófst á Hilton Nordica hótelinu klukkan fjögur en um 800 manns eru mættir. Um 1500 stofnfjáreigendur eru í Byr en málefni sjóðsins hafa verið í fréttum undanfarna daga í kjölfar umdeildrar sölu skilanefndar gamla Landsbankans á 2,6 prósenta hlut í sjóðnum til Reykjavík Invest sem er í eigu Arnars Bjarnasonar en hann gefur kost á sér til stjórnarsetu á fundinum. Ekkert varð af sölunni þar sem skilanefndin féllst ekki á gjörninginn, sem þó var búið að tilkynna og taka fyrir hjá stjórn Byrs. 13. maí 2009 16:15 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira
Hiti á aðalfundi Byrs - erfiðasta ár í sögu sjóðsins Rúmlega 700 manns sitja aðalfund sparisjóðsins Byr sem hófst klukkan fjögur og stendur enn yfir. Þetta er átakafundur enda tapaði sparisjóðurinn 29 milljörðum á síðasta ári. Tveir listar eru þar að auki í framboði til stjórnar. 13. maí 2009 18:31
800 manns á aðalfundi Byrs Góð mæting er á aðalfund Byrs sem hófst á Hilton Nordica hótelinu klukkan fjögur en um 800 manns eru mættir. Um 1500 stofnfjáreigendur eru í Byr en málefni sjóðsins hafa verið í fréttum undanfarna daga í kjölfar umdeildrar sölu skilanefndar gamla Landsbankans á 2,6 prósenta hlut í sjóðnum til Reykjavík Invest sem er í eigu Arnars Bjarnasonar en hann gefur kost á sér til stjórnarsetu á fundinum. Ekkert varð af sölunni þar sem skilanefndin féllst ekki á gjörninginn, sem þó var búið að tilkynna og taka fyrir hjá stjórn Byrs. 13. maí 2009 16:15