Íslandsbanki ekki lengi í eigu kröfuhafa Glitnis Sigríður Mogensen skrifar 16. október 2009 12:10
Kröfuhafar Glitnis munu ekki eiga Íslandsbanka lengi, en stefnt er að því að selja bankann eftir nokkur ár. Það ræðst á næstu vikum hvort kröfuhafar gamla Kaupþings eignist nýja bankann. Nú sér loks til lands í endurreisn bankakerfisins, og lítur út fyrir að ríkið muni leggja umtalsvert minna fé til endurreisnar bankanna en til stóð upphaflega. Skilanefnd Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, hefur tekið yfir 95% hlut í Íslandsbanka - og mun ríkið halda á 5% hlut í bankanum. Ríkið leggur bankanum til 25 milljarða króna í formi víkjandi láns. Hins vegar fær ríkið til baka þá 37 milljarða sem það hafði lagt í bankann. Ekki stendur til að kröfuhafar Glitnis eigi Íslandsbanka til framtíðar, enda er ekki um að ræða kaup heldur eru kröfuhafar að taka bankann upp í kröfur sínar á hendur gamla bankanum. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, sagði á blaðamannafundi í gær að nokkrir erlendir aðilar hafi sýnt Íslandsbanka áhuga. Hann vildi þó ekki gefa upp hverjir það væri. Markmiðið sé að selja eignina eftir nokkur ár. Það ræðst á næstu vikum hvaða leið verður farin með nýja Kaupþing. Skilanefnd bankans fundar með kröfuhöfum í næstu viku. Frestur skilanefndarinnar til að taka ákvörðun, fyrir hönd kröfuhafa, um hvort sambærileg leið verður farin og með Íslandsbanka rennur út 31.október.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira