Aðstoðarbankastjóri Kaupþings endurskoðaði aflandsfélög 17. september 2009 18:09
Kaupþing stofnaði og sá um endurskoðun á fjölmörgum félögum í skattaparadísum í gegnum endurskoðunarfyrirtæki á bresku jómfrúareyjunum. Fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Kaupþings, sem ekki er endurskoðandi, sá einnig um endurskoðun. Kaupþing í Lúxemborg stofnaði fjölmörg félög þar í landi. Í flestum tilfellum var það gert í gegnum 2 til 3 skúffufélög á eyjunni Tortola. Alls notaði Kaupþing átta skúffufélög í félagastofnunina og tvö endurskoðendafyrirtæki, Themis Audit Limited og Rothley Company Limited. Heimilsfang félaganna allra sem og endurskoðunarfyrirtækjanna er pósthólf 3186 á Tortola. Fréttastofa hefur undir höndum ársreikninga nokkurra fyrirtækja sem stofnuð voru með þessum hætti og eru skráð í Lúxemborg. Með þeim fylgir skýrsla endurskoðandans Rothley Company Limited til stjórna félaganna þar sem fram kemur að ársreikningurinn hafi verið endurskoðaður þó ekki af löggiltum endurskoðanda. Undir þetta skrifar, fyrir hönd endurskoðunarfyrirtækisins, Björn Jónsson. Björn var aðstoðarbankastjóri Kaupþings í Lúxemborg en gengdi þar á undan stöðu yfirmanns einkabankaþjónustu. Hann er menntaður viðskiptafræðingur en ekki löggiltur endurskoðandi. Björn er ekki eini starfsmaður Kaupþings sem þetta gerði en fréttastofa hefur einnig séð nöfn annarra erlendra starfsmanna bankans koma við sögu. Endurskoðandi sem fréttastofa ræddi við sagðist ekki vita hvaða reglur gilda í Lúxemborg en það væri ekki í samræmi við íslensk lög að aðrir en löggilltir endurskoðendur skrifi undir ársreikninga fyrir hönd endurskoðunarfyrirtækis.
Mest lesið Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Neytendur eigi meira inni Neytendur Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira