Dómstólar skeri úr um lögmæti skilmála húsnæðislána 26. mars 2009 12:05
Hagsmunasamtök heimilanna telja nauðsynlegt að dómstólar taki afstöðu til lögmæti skilmála verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána í ljósi þess hve forsendur þessara lána hafa breyst gríðarlega. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau vonast til þess að fá nokkra einstaklinga til að taka þátt í slíkri lögsókn. Samtökin telja slíka málsókn mikilvæga til láta reyna á neytendasjónarmið, þar sem annar aðili í lánasamningi hafi sjaldnast nokkra sérþekkingu á lánamálum, hugsanlega breytingu höfuðstóls lánanna til langs eða skamms tíma eða geti haft á nokkurn hátt áhrif á slíka þróun, meðan hinn aðilinn hefur öll tök á að hafa áhrif á forsendur lánasamningsins sér í hag. Undirbúningur að svona málsókn er þegar hafinn. Er þetta m.a. gert í ljósi þess, að ríkisvaldið hefur ákveðið skilja lántakendur eftir með skellinn af hækkun höfuðstóls. Hagsmunasamtök heimilanna hafa nú um nokkurt skeið átt í viðræðum við stjórnvöld, forystufólk í stjórnmálaflokkum sem og lánastofnanir um aðgerðir í þágu heimilanna. Auk þess hafa samtökin fylgst náið með umræðunni og yfirlýsingum þessara aðila um þessi málefni og leitast við að koma sjónarhorni og kröfugerð sinni á framfæri við fjölmiðla. „Það er þyngra en tárum tekur að stjórnvöld skuli ekki hafa í hyggju, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur samtakanna, að eiga frumkvæði að leiðréttingu ósanngjarnra og hugsanlega ólöglegra hækkana höfuðstóla lána, í formi hvoru tveggja gengis- og verðtryggingar," segir í tilkynningunni. „Þvert á móti stefnir í að umræddar hækkanir eigi að mynda grunn fyrir stórfellda eignaupptöku fjármálastofnana á heimilum landsmanna. Stofnana sem flestar eru nú í ríkiseigu eða í gjörgæslu ríkisins með einum eða öðrum hætti. Stofnanir þessar eiga sjálfar að fá í meðgjöf himinháar afskriftir á innlendum lánasöfnum en ætla ekki að gefa spönn eftir sjálfar. Hagsmunasamtökum heimilanna finnst eðlilegt og sanngjarnt að heimilin í landinu njóti þessarar meðgjafar á sama hátt og aðrir skuldarar bankanna. Stjórn Hagsmunasamtakanna óttast að innheimta eigi lán heimilanna að fullu til að fjármagna skuldir fyrirtækja og fjármálastofnana sem ekki fást greiddar. Það virðist vera ætlun stjórnvalda að endurfjármagna þannig bankakerfið með fasteignum heimilanna."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira