Úrslitatilraun til að flæma Portland Aalborg af markaðinum 2. september 2009 13:59
Kjarni málsins er þessi: Tilgangur alls þessa dæmalausa málatilbúnaðar er úrslitatilraun til þess að flæma Aalborg Portland frá íslenskum markaði. Öllu skal til tjaldað og í engu sparað þrátt fyrir bágborinn efnahag Sementsverksmiðjunnar, skuldasöfnun og kostnað sem af hlýst. Skiptir þá engu þó að framleiðslukostnaður sé hærri en söluverð. Þetta segir í bréfi sem Bjarni Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi sendi frá sér í dag. Bréfið hljóðar svo: „Eina ferðina enn sætir Aalborg Portland á Íslandi ásökunum frá forsvarsmönnum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Nú eru uppi dylgjur um undirboð og óheiðarleika. Það er dapurlegt að Sementsverksmiðjan skuli grípa til slíkra óyndisúrræða á sama tíma og ríkisstjórn Íslands ræðir opinbera aðstoð við verksmiðjuna að kröfu Skagamanna og ráðherrann Jón Bjarnason og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson, lýsa opinberlega að þeir vilji íslenska einokun á sementi. Áður höfðu formaður Verkalýðsfélags Akraness og bæjarstjórinn upp á Skaga krafist þess að stjórnvöld beiti handafli til þess að neyða Steypustöðina hf. úr viðskiptum við Aalborg Portland yfir í viðskipti við Sementsverksmiðjuna. Í grein í Morgunblaðinu 31.8. 2009 taldi Víglundur Þorsteinsson, í BM Vallá og meðeigandi í Sementsverkmiðjunni, sér sæma að setja útá viðskipti Steypustöðvarinnar hf. við Aalborg Portland á Íslandi. Forstjóri Steypustöðvarinnar, Hannes Sigurgeirsson, sá sig knúinn til þess að kveða sér hljóðs og kvað það "lítt aðlaðandi" að fara í viðskipti við Sementsverksmiðjuna í eigu helsta samkeppnisaðilans, BM Vallá. Allt er þetta með ólíkindum og vegir samkeppni órannsakanlegir og býsna bugðóttir á Íslandi. Það eru uppi ásakanir um undirboð. Þar rekst hvað á annars horn í bullinu, flest á röngunni og rest á haus. Í dæmalausri grein sinni í Morgunblaðinu segir Víglundur að Steypustöðin kaupi sement á hærra verði af Aalborg en Sementsverksmiðjan bjóði. Daginn eftir sætir Aalborg ásökunum um undirboð! Það er vandlifað í íslenskum samkeppnisheimi. Enn fremur: Fyrir skömmu fóru tveir af þremur stærstu viðskiptavinum Aalborg Portland á Íslandi, Loftorka og Steypustöðin Borg, úr viðskiptum vegna þess að Sementsverksmiðjan bauð betri verð, þ.e. undirbauð þrátt fyrir bullandi hallarekstur í góðærinu undanfarin ár og skuldasöfnun á útrásarslóðum, sbr lánabók Kaupþings. Og nú skal Steypustöðin þvinguð með handafli í viðskipti upp á Akranes. Sementsverksmiðjan birtir marklausa heimatilbúna töflu um samanburð á verðlagningu á sementi til Íslands annars vegar og hins vegar af lager í Danmörku. Það er sitthvað dreifing og smásala; samanber að hvert mannsbarn veit að fiskur er dýrari í fiskbúð en á fiskmarkaði, eða hverjum dettur í hug að stærsti sementskaupandi sætti sig við listaverð líkt og neytandi sem kaupir sement í poka. Ég leyfi mér þó að benda forráðamönnum Sementsverksmiðjunnar á að hefja útflutning á sementi hið fyrsta, úr því verð á erlendum mörkuðum eru jafnhá og haldið er fram í fréttatilkynningu um meint undirboð Aalborg Portland á Íslandi... Almenningi er ætlað að fá reikninginn í hausinn og bera fórnarkostnaðinn sem fyrr, líkt og þegar ríkið seldi verksmiðjuna árið 2003...
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira