Sparisjóðabankinn fundaði með FME um helgina 9. mars 2009 14:58
Fjármálaeftirlitið (FME) átti fundi með forráðamönnum Sparisjóðabankans um helgina samhliða viðræðunum við forráðamenn Straums. Á þessum fundum var erfið staða Sparisjóðabankans til umfjöllunnar. Agnar Hansson forstjóri Sparisjóðabankans segir í samtali við Fréttastofu að hann telji ekki að skilanefnd sé á leiðinni til að taka yfir Sparisjóðabankann að svo stöddu. „En Fjármálaeftirlitið er sjálfstæð stofnun og mun örugglega grípa inn í hjá okkur ef þeim þykir ástæða til þess," segir Agnar. Fram kemur í máli Agnars að þeir hafi fengið frest fram til 28. mars til að vinna að endurskipulagningu bankans. „Við teljum að sá frestur standi enn og við erum að vinna úr hugmyndum sem fram hafa komið um framtíðarlausn á málefnum bankans," segir Agnar. Þarna á Agnar við það að fyrir nokkru tókst í fyrsta sinn að koma á fundi með stýrihópi erlendra kröfuhafa bankans og fulltrúum stjórnvalda. Þar voru til umræðu hugmyndir um niðurfellingu á skuldum bankans, lengingu á lánum hans á hagstæðum kjörum og skuldabreytingar á skuldum yfir í hlutafé. „Við erum að vinna úr þessum hugmyndum núna og sú vinna er í fullum gangi," segir Agnar. Eins og fram hefur komið í fréttum glímir Sparisjóðabankinn við skuldir upp á um 150 milljarða kr. sem er um tífalt eigið fé bankans eins og það var skráð um mitt ár í fyrra. Af þessari upphæð eru 70-75 milljarðar í höndum ríkisvaldsins eftir veðkall Seðlabankans á hendur Sparisjóðabankanum fyrir áramótin.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira