Tekjuhalli hins opinbera 209 milljarðar í fyrra 9. mars 2009 09:08
Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var hið opinbera var rekið með 17 milljarða króna tekjuhalla samanborið við 19,6 milljarða króna tekjuafgangi á sama tíma 2007. Hallinn var svipaður fyrir árið í heild en þá eru ótalin 192 milljarða króna yfirtaka ríkissjóðs á töpuðum kröfum vegna veðlána Seðlabankans. Að henni meðtalinni er tekjuhalli hins opinbera 209,3 milljarðar króna 2008 eða 14,3% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í Hagtíðindi Hagstofunnar í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2008. Á árinu 2008 sem heild var tekjuhalli hins opinbera 17,2 milljarðar króna eða 1,2% af landsframleiðslu, en til samanburðar varð 70,6 milljarða króna tekjuafgangur á fjármálum hins opinbera 2007 eða sem svara til 5,4% af landsframleiðslu. Verulegur viðsnúningur hefur því orðið á fjármálum hins opinbera milli ára sem fyrst og fremst á rætur að rekja til samdráttar í tekjum þess, en skatttekjur drógust lítillega saman milli ára í krónum talið á sama tíma og útgjöldin jukust um 18,2%. Þá eru ótalin 192 milljarða króna yfirtaka ríkissjóðs á töpuðum kröfum vegna veðlána Seðlabankans. Að henni meðtalinni er tekjuhalli hins opinbera 209,3 milljarðar króna 2008 eða 14,3% af landsframleiðslu. Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var neikvæð um 14,2 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2008 samanborið við 17,9 milljarða króna jákvæða afkomu árið áður. Á árinu öllu var tekjuafkoma þessara aðila neikvæð um rúmlega 8 milljarða króna samanborið við 62,7 milljarða króna jákvæða afkomu árið 2007. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig neikvæð á 4. ársfjórðungi 2008 eða um 2,9 milljarða króna og því mun lakari en á sama tíma 2007 er hún var jákvæð um 1,8 milljarða króna. Áætlað er að tekjuafkoma sveitarfélaganna verði neikvæð um rúmlega 9 milljarða króna á árinu 2008 samanborið við jákvæða afkomu upp á 8 milljarða króna á árinu 2007. Miklar endurgreiðslur vegna gatnagerðargjalda og sölu byggingarréttar skýra að hluta þennan mikla viðsnúning.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira