Viðskipti innlent

Samningar við ÍAV falla að verklagsreglum Kaupþings

ÍAV á góðri stundu. Mynd tengist ekki fréttinni beint.
ÍAV á góðri stundu. Mynd tengist ekki fréttinni beint.

Nýja Kaupþing og ÍAV hafa átt í viðræðum um endurskipulag á efnahag fyrirtækisins og tengdra félaga samkvæmt tilkynningu sem Kaupþing sendi frá sér nú fyrir stundu.

Það segir jafnframt: Niðurstaða í viðræðunum liggur ekki fyrir en ÍAV fellur að verklagsreglum Nýja Kaupþings um úrlausn útlánavandamála sem settar hafa verið fram af bankanum. Miðað við núverandi afborganaferli lána, gengis og vaxtastig reyndist hins vegar nauðsynlegt að endursemja um lán félagsins við bankann.

Með endurskipulagningunni er stefnt að því að tryggja að starfsemi ÍAV haldi áfram með óbreyttum hætti.

Nýja Kaupþing og ÍAV harma ótímabæran fréttaflutning af málefnum ÍAV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×