Viðskipti innlent

Lánasjóður sveitarfélaga skilaði 1,2 milljörðum í fyrra

Tekjuafgangur Lánasjóðs sveitarfélaga á síðasta ári nam 1.225 milljónum kr. á móti 1.219 milljónum kr. árið áður.

Í tilkynningu frá sjóðnum segir að afkoma 2008 hefði verið mun betri ef ekki hefði komið til niðurfærslu að verðmæti 1.472 milljónir króna vegna afleiðusamninga sem sjóðurinn hafði gert við Glitni banka.

Háir vextir á innlendum markaði svo og mikil verðbólga skiluðu mjög góðri afkomu en eignir sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum. Ávöxtun á lausu fé var einnig framúrskarandi, en mestur hluti þess var varðveittur í Seðlabankanum.

Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2008 voru 15.5 milljarðar kr. miðað við rúma 4 milljarða kr. á fyrra ári.

Skammtímalánveitingar sjóðsins námu hinsvegar 6.1 milljarði kr. á árinu en voru 5.8 milljarðar kr. á fyrra ári. Aðstæður til töku langtímalána, bæði verðtryggðra og gengistryggðra, voru einstaklega óhagstæðar á árinu.

Mikil aukning varð í eftirspurn eftir lánum hjá sjóðnum eftir fall bankanna og tókst sjóðnum að bregðast skjótt við og veita mikið af lánum á síðustu mánuðum ársins. Þar eiga lífeyrissjóðir landsins mikinn þátt sem þátttakendur í skuldabréfaútboðum sjóðsins.

Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2008. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum samkvæmt lögum og reglugerðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×