Innlögnum fjölgar um 142% á skráningarnúmerum ökutækja 28. október 2009 14:29
Á þessu ári hafa innlagnir skráninganúmera ökutækja aukist stórlega borið saman við undanfarin ár. Þannig voru 5239 skráningarnúmer lögð inn í september á þessu ári á meðan 2158 voru lögð inn til geymslu á sama tíma í fyrra. Þetta er 142% aukning á innlögnum skráningarnúmera á milli ára. Í yfirliti frá Umferðarstofu segir að þessa gríðarlegu aukningu má rekja til þess að fjölmargir eigendur ferðavagna, þ.e. fellihýsa, hjólhýsa og tjaldvagna, kusu að leggja númerin inn í stað þess að færa þau til skoðunar eða eiga á hættu álagningu vanrækslugjalds. Fram til þessa hafa eigendur árstíðabundinna ökutækja lagt skráningarnúmer þeirra inn til geymslu á veturna til þess að fá felld niður opinber gjöld og eftir atvikum tryggingar. Á þetta fyrst og fremst við um ökutæki sem eru notuð mest yfir sumartímann, líkt og húsbifreiðar, fornbifreiðar og bifhjól. Þessi mikla aukning sem nú á sér stað má fyrst og fremst rekja til breyttra skoðunarreglna sem tóku gildi fyrr á þessu ári og fólu í sér að skylt er að skoða svonefndra ferðavagna, þ.e. hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi. Skoðun þessara ökutækja er nú áskilin fyrir 1. ágúst á skoðunarári og skal henni lokið fyrir 1. október á skoðunarári. Með því að leggja númer þessara ökutækja inn til geymslu gátu eigendur ökutækjanna komið í veg fyrir að 15 þúsund króna vanrækslugjald yrði lagt á óskoðuð ökutækin. Í raun er þó um frest að ræða því þegar eigandi ökutækisins hyggst taka það aftur í notkun verður hann að byrja á að láta skoða ökutækið. Hjá Umferðarstofu er hægt að fá akstursheimild til einnar viku eftir að númerin eru tekin út en ef ekki er búið að skoða ökutækið innan þess frest leggst vanrækslugjald á það.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Sjá meira