Gengið mun lægra en peninganefnd telur viðunandi Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. ágúst 2009 11:22 Svein Harald Oygard kynnti stefnu Seðlabankans í dag. Mynd/ Vilhelm.
Gengi krónu er mun lægra en peningastefnunefndin hefur talið viðunandi þó það hafi talist stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun. Fyrir vikið hefur hægt á hjöðnun verðbólgunnar. Eigi að síður er þess vænst að verðbólga minnki hratt á ný síðar á árinu. Þetta kemur fram í stefnuyfirlýsingu Seðlabanka Íslands, sem birt var í dag. „Þegar höft á fjármagnshreyfingar eru til staðar ætti aukinn afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum að styrkja gengi gjaldmiðilsins. Tímabundnir áhrifaþættir, t.d. rýrnun viðskiptakjara, árstíðarbundnar vaxtagreiðslur til erlendra aðila og árstíðarbundin aukning innflutnings, hafa á ýmsum tímum haft neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð og gengi krónunnar. Áhyggjuefni er hins vegar að gengi krónunnar hefur ekki hækkað að þessum tímabundnu áhrifum gengnum. Því er mikilvægt að ábati af krónueignum sé nægur. Það hefur bæði áhrif á tilhneigingu til þess að fara í kringum gjaldeyrishöftin og á hvata útflutningsfyrirtækja til að breyta gjaldeyristekjum sínum í krónueignir," segir í yfirlýsingunni. Seðlabankinn segir að staða erlendra aðila í krónum hafi lækkað nokkuð undanfarna mánuði, sem bendi til þess að farið sé í kringum höftin í einhverjum mæli. Fyrirtæki virðist einnig hafa byggt upp innstæður á gjaldeyrisreikningum í innlendum bönkum. Þær hafi þó lítið breyst undanfarnar vikur. Engin skýr merki séu um að lækkun stýrivaxta fyrr á þessu ári eigi umtalsverðan þátt í því að farið sé í kringum höftin, að innstæður á gjaldeyrisreikningum hafi aukist, eða að hún skýri almennt lágt gengi krónunnar. Þó sé ekki heldur hægt að útiloka slík tengsl. Á meðan krónan sé jafn veik og hún hafi verið undanfarna mánuði séu því sterk rök gegn frekari lækkun vaxta.. Fyrir vikið hafi hægt á hjöðnun verðbólgunnar. Eigi að síður sé þess vænst að verðbólga minnki hratt á ný síðar á árinu.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira