Innlent

Steingrímur J. flytur Hólaræðu

steingrímur j. sigfússon
steingrímur j. sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flytur hátíðarræðu á Hólahátíð í ár. Hátíðin fer fram helgina 14.-16. ágúst.

Forystufólk úr stjórnmálum hefur löngum verið fengið til að flytja Hólaræðu og hafa þær oft vakið mikla athygli.

Meðal stjórnmálamanna sem flutt hafa hátíðarræðuna á undanförnum árum eru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Björn Bjarnason, Halldór Ásgrímsson, Halldór Blöndal og Davíð Oddsson. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×