Ronaldo þarf að borga 20 milljónir fyrir bíltryggingu 9. janúar 2009 14:49 Ronaldo þótti sleppa ótrúlega vel eftir óhappið í gær, en sleppur ekki jafn vel fjárhagslega AFP
Cristiano Ronaldo hafði aðeins átt Ferrari bílinn sinn í tvo daga þegar hann klessukeyrði hann á vegg í Manchester í gær. Hann er nú aftur kominn á Bentley, en hætt er við því að tryggingar kappans hækki hressilega í framtíðinni. Ekki var nóg með að 38 milljón króna sportbíll Ronaldo sé ónýtur, heldur er haft eftir talsmanni félags breskra bifreiðaeigenda í Guardian í dag að ökutækjatrygging Portúgalans muni nú hækka gríðarlega. "Það kemur ekkert tryggingafélag nálægt svona tryggingu. Menn þyrftu að vera minnst 25 ára gamlir til að fá viðráðanlega tryggingu á svona bíl, en hún myndi ekki fást á innan við átta milljónir. Ef hinsvegar viðkomandi hefur lent í óhappi eins og í þessu tilviki, færi gjaldið upp undir 20 milljónir." Talsmaðurinn bætti við að tryggingafélög væru treg til að taka að sér að tryggja ökutæki atvinnumanna í knattspyrnu - óháð bílategund - því þeir flokkuðust sem sérstakur áhættuhópur. "Það er ekki bara hátt verð bílsins sem um ræðir, heldur er ómögulegt að gera sér í hugarlund hversu háar fjárhæðir tryggingafyrirtækið þyrfti að borga ef leikmaðurinn myndi ef til vill lenda í óhappi með tvo félaga sína með sér í bílnum og gæti ekki spilað aftur. Þá kæmu mögulega kröfur um launagreiðslur og auglýsingasamninga inn í dæmið."
Enski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira