ÍLS fær heimild til að lána til leiguíbúða 2. febrúar 2009 11:51
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett tvær reglugerðir um starfsemi Íbúðalánasjóðs. Helstu nýmæli felast í nýjum lánaflokki sem heimilar lánveitingar til endurbóta og viðhalds á leiguíbúðum, rýmri heimildum til að veita fötluðum einstaklingum aukalán vegna sérþarfa og heimild til veðlánaflutninga milli leiguíbúða sem eru í eigu sama lántakenda. Í tilkynningu um málið segir að nýr lánaflokkur sem heimilar lán til félaga, félagasamtaka og sveitarfélaga vegna endurbóta og viðhalds á leiguíbúðum sem þau reka til útleigu tryggir þessum aðilum sambærilega lánafyrirgreiðslu til endurbóta á leiguíbúðum og einstaklingar eiga kost á vegna eigin íbúðarhúsnæðis. Ætla má að þessi lánamöguleiki geti skapað svigrúm til framkvæmda og þar með aukna atvinnu í byggingariðnaði, til dæmis ef sveitarfélög vilja nýta slík lán til viðhalds á leiguíbúðum sínum. Til þessa hefur einungis verið heimilt að veita fötluðu fólki aukalán vegna sérþarfa hafi slíkt lán komið til viðbótar öðrum fasteignaveðlánum frá Íbúðalánasjóði. Með breytingunni er þetta skilyrði fellt brott og heimilað að veita aukalán óháð því hver er lánveitandi annarra fasteignalána sem hvíla á íbúðarhúsnæðinu. Jafnt aðgengi fatlaðra að þessum lánamöguleika er þannig tryggður. Auk þessa eru gerðar ýmsar breytingar til einföldunar við framkvæmd þessara lána til hagsbóta fyrir fatlaða. Í reglugerðunum eru einnig þau nýmæli að lánstími lána til byggingar eða kaupa á sambýlum fatlaðra er lengdur úr 25 árum í 40 og sama máli gegnir um lánstíma lána vegna meiriháttar utanhússviðgerða innlausnaríbúða. Lánstími viðgerðarlána til byggingar eða kaupa á vistheimilum fyrir börn og unglinga er lengdur úr 25 árum í 40 og sömuleiðis lánstími lána til byggingar eða kaupa á vistheimilum fyrir börn og unglinga. Hætt verður að skerða lánsfjárhæðir sjóðsins vegna opinberra framlaga. Þetta á við um lán til byggingar eða kaupa á heimilum og dagvistarstofnunum fyrir aldraða, sambýlum fyrir fatlaða, lán til leiguíbúða og lán til byggingar eða kaupa á vistheimilum fyrir börn og unglinga. Samkvæmt reglugerðinni er nú miðað við að lán úr Íbúðalánasjóði og annað fjármagn verði þó aldrei hærra en sem nemur kaupverði eða byggingarkostnaði. Með breytingu á reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur getur Íbúðalánasjóður heimilað að veðlán sem veitt hafa verið til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum séu flutt milli leiguíbúða að því tilskildu að íbúðirnar séu í eigu sama lántaka, þ.e. félags, félagasamtaka eða sveitarfélags, og að önnur skilyrði sjóðsins séu uppfyllt. Til þessa hafa heimildir til veðlánaflutninga einungis náð til einstaklingslána.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira