Tryggingarfélögin töpuðu samanlagt 50 milljörðum í fyrra 17. júlí 2009 08:54
Innlendu tryggingafélögin (vátryggingafélög í annarri starfsemi en líftryggingastarfsemi) töpuðu samanlagt 49,6 milljarða kr. á síðasta ári. Til samanburðar var samanlagður hagnaður félaganna 20,3 milljarðar kr. árið 2007. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að tapið má nær eingöngu rekja til mikils taps af fjárfestingum félaganna en á undanförnum árum hafa fjárfestingar skilað umtalsverðum hagnaði. Á árinu 2007 var hagnaður af fjármálarekstri tæpir 10 milljarðar kr. Af heildartapinu er Sjóvá með vel yfir helminginn en eins og fram hefur komið í fréttum nam tap þess félags rúmum 30 milljörðum kr. á síðasta ári. Tap tryggingafélaga af vátryggingarekstri var 3,8 milljarðar kr. á síðasta ári en þar vegur þyngst tap Viðlagatryggingar vegna jarðskjálftans á Suðurlandi. Að undanskilinni Viðlagatryggingu var hagnaður skaðatryggingafélaga af vátryggingarekstri 856 milljónum kr. Eignir skaðatryggingafélaganna lækkuðu um 33 milljarða kr. eða 25,1% á milli ára. Þær voru í árslok 2008 um 97,9 milljarðar kr., samanborið við 130,6 milljarða kr. í árslok 2007. Eigið fé félaganna nam 5,5 milljarði kr. og lækkaði á árinu um 88,1%. Töluverðar breytingar urðu einnig á eignasamsetningu félaganna á árinu. Verðbréf með breytilegum tekjum, þ.e. hlutabréf og hlutabréfatengd verðbréf voru í árslok 2008 5,8 milljarðar kr. samanborið við 16,5 milljarða kr. í árslok 2007. Skuldabréf voru 13,9 milljarðar kr. í árslok 2008 samanborið við 7,4 milljarða kr. í árslok 2007.Mesta lækkunin var í virði fjárfestinga í samstæðu- og hlutdeildarfélögum sem var 40,2 milljarðar kr. í árslok 2008 en var 59,8 milljarða kr. í árslok 2007 sem svarar til 32,7% lækkunar.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira