Sátt að nást um eignarhaldsfélagið 20. júní 2009 08:00 Á Alþingi bíður lokaafgreiðslu frumvarp um endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja. Mynd/Daníel
Allgóð sátt hefur náðst um frumvarp um eignaumsýslufélag ríkisins í efnahags- og skattanefnd. Helst er deilt um hvernig stjórn félagsins skuli skipuð. Annarri umræðu um frumvarpið lauk á þingi í gær. Frumvarpið hefur tekið nokkrum breytingum og félagið sem stofna á til færst í áttina að því að verða „ráðgjafar og samræmingarfélag," svo notuð séu orð Péturs Blöndals, þingmanns Sjálfstæðisflokks í umræðum þingsins í gær. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, kveðst mjög sáttur við hvernig til hafi tekist við að skapa sátt um frumvarpið, en málið vakti harðar deilur og viðbrögð þegar fyrst var við því hreyft að ríkið stofnaði sérstakt félag til að fara með eignarhald á „þjóðhagslega mikilvægum" fyrirtækjum. Í umræðum á þingi kom fram að í þingnefndinni væru menn orðnir nokkuð samstíga um málið og urðu margir til að hrósa bæði samstarfinu og verkstjórninni í nefndinni. Helst er deilt um hvernig félaginu skuli skipuð stjórn, en fulltrúar Framsóknarflokksins í efnahags- og skattanefnd hafa gert athugasemdir við að ráðherra sé þar einráður. Fulltrúi Borgaraflokksins gerði einnig fyrirvara vegna þessa. Helgi segir að farið verði yfir þetta mál í lokayfirferð nefndarinnar áður en frumvarpið fer aftur fyrir þingið og verður að lögum. „Ég býst við að við gefum okkur næstu viku til að ljúka umfjölluninni endanlega," segir hann. Mats Josefsson, sænskur ráðgjafi forsætisráðuneytisins um endurreisn bankakerfisins, hreyfði fyrstur við hugmyndinni um eignaumsýslufélagið, en slík skipan gaf góða raun í bankakreppu í Svíþjóð. Helgi segist hafa látið þýða frumvarpsdrögin og bera þau undir Mats sem sé sáttur við þau eins og þau séu.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira