Vextir lækkaðir þegar endurskoðun AGS er í höfn 20. október 2009 11:26
Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans muni ákveða að lækka vexti bankans í næsta mánuði ef endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður í höfn. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 5. nóvember næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í ljósi þess hve tíminn er naumur fram að vaxtaákvörðunardeginum og að endurskoðun AGS hvílir m.a. á samþykkt Alþingis á ríkisábyrgð vegna Icesave telur greiningin þó líklegra að peningastefnunefnd bankans ákveði að halda vöxtum óbreyttum nú en að hún setji niður viðbótarvaxtaákvörðunardag í byrjun desember þar sem hún mun ákveða að lækka vexti bankans enda ætti endurskoðun AGS að vera í höfn þá. „Við teljum að vaxtalækkunin, hvort sem hún verður núna í byrjun nóvember eða desember, verði með þeim hætti að nefndin ákveða að lækka vexti í sjö daga veðlánum til innlánsstofnana um 0,5 til 1,0 prósentu þ.e. úr 12% niður í 11,0-11,5%," segir í Morgunkorninu. „Einnig teljum við að nefndin ákveði að lækka innlánsvexti sína, sem við aðstæður sem nú eru á fjármálamarkaði eru hinir raunverulegu stýrivextir og hinn raunverulegi mælikvarði á aðhald peningastefnunnar, um 0,25-0,50 prósentur þ.e. úr 9,5% í 9,0-9,25%. Teljum við að nefndin muni enn vilja draga úr umframlausafé í fjármálakerfinu og draga þannig markaðsvexti nær vöxtum bankans. Með þessu væri nefndin að fara svipaða leið og Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, lagði til á síðasta vaxtaákvörðunarfundi nefndarinnar en ekki var meirihluti fyrir í nefndinni þá." Ennfremur segir í Morgnkorninu að ýmis merki hafa komið fram frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í lok september sem ættu að hvetja nefndina til að lækka vexti nú. Má þar nefna að gengi krónunnar hafi haldist nokkuð stöðugt þrátt fyrir lítil sem engin inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði og minnkandi afgang af þjónustujöfnuði. Verðbólgan mun líklega hafa lækkað nokkuð þegar að ákvörðun nefndarinnar kemur.
Mest lesið Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Allt að 1500 króna munur á jólabókunum milli verslana Neytendur Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira