Sjóvá til saksóknara eftir skýrslu frá endurskoðenda FME 9. júlí 2009 10:03
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME) um að vísa máli Sjóvár til Sérstaks saksóknara byggði m.a. á skýrslu um málefni félagsins sem endurskoðandi á vegum FME skilaði til eftirlitsins í lok janúar. Starfsmenn FME voru meðal þeirra sem tóku þátt í húsleitunum í fyrradag. Þetta kemur fram á vefsíðu FME. Þar segir að vegna umfjöllunar fjölmiðla um mál sem Fjármálaeftirlitið hafði til rannsóknar og sneri m.a. að Sjóvá-Almennum tryggingum hf. telur Fjármálaeftirlitið rétt að fram komi að málinu var vísað til embættis sérstaks saksóknara samkvæmt ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins þann 25. mars sl. Aðdragandi málsins er sá að Fjármálaeftirlitið hefur verið með ákveðin málefni tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til skoðunar frá fyrri hluta árs 2008. Þann 15. desember sl. skipaði Fjármálaeftirlitið sérstakan endurskoðanda til að fara yfir málefni félagsins og skilaði hann skýrslu til Fjármálaeftirlitsins í lok janúar sl. Skýrsla hans, auk athugana Fjármálaeftirlitsins, leiddi til þess að Fjármálaeftirlitið vísaði tilteknum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár-Almennra trygginga hf. og annarra aðila til sérstaks saksóknara. Eins og kunnugt er gerði embætti sérstaks saksóknara húsleitir á nokkrum stöðum í fyrradag. Með vísan til tilkynningar embættis sérstaks saksóknara þá tóku um 25 manns þátt í umfangsmiklum aðgerðum. Starfsmenn frá Fjármálaeftirlitinu voru þeirra á meðal, en um var að ræða þátt í góðri samvinnu á milli embættis sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitsins.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira