Áfram unnið að endurskipulagi Sparisjóðs Mýrarsýslu 3. mars 2009 12:37
Sparisjóður Mýrasýslu hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við Kaupþing banka hf. í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að í nóvember 2008 undirrituðu Nýi Kaupþing banki hf. og Borgarbyggð samkomulag um kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits. Þann 27. janúar sl. undirritaði sparisjóðurinn samkomulag við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem var til 2. mars næstkomandi. Samkomulaginu hefur verið framlengt til 1. Apríl næstkomandi við alla lánadrottna utan einn en gert er ráð fyrir að ljúka samningum við hann á næstu dögum. Áfram gildir að höfuðstóll lána verður ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af víkjandi lánum. Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öðrum lánum, eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á sparisjóðinn. Eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri endurskipulagningu. Þegar hefur verið samið við einn eiganda útgefinna bréfa að fresta gjalddaga bréfanna og vonast er til að fleiri komi að málinu á síðari stigum þess. Sparisjóður Mýrasýslu hefur eins og komið hefur fram átt í viðræðum við lánardrottna um nokkurn tíma vegna stöðu sjóðsins og eru sparisjóðsstjóri og stjórn sparisjóðsins eru bjartsýnir á að samningar muni nást um fjárhagslega endurskipulagningu. Undirritun samkomulags við lánardrottna er jákvætt skref í átt að því að tryggja framtíðarrekstur sparisjóðsins og að tryggja hagsmuni viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira