Vilja endurheimta traust Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. júní 2009 00:01 Á kynningarfundi í gær Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, kynntu í gær nýtt rit um stjórnarhætti fyrirtækja. Fréttablaðið/Valli
Sjaldan hefur verið meiri þörf en nú á leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja, að mati Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Nýja útgáfu slíkra leiðbeininga sem kynnt var í gær sagði hann þó vekja blendnar tilfinningar, en Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin kynntu í gær þriðju og mikið endurbætta útgáfu leiðbeininganna. Fyrsta útgáfa þeirra kom út árið 2004 og var endurbætt ári síðar, en hefur síðan verið óbreytt. Gylfi segir blendnar tilfinningar þó ekki til komnar af því að reglurnar séu slæmar, þvert á móti séu þær um margt ágætar. „Skýringin á blendnum tilfinningum er einfaldlega forsagan. Ekki hefur gengið nógu vel að fá þá sem áttu að fylgja slíkum reglum til þess að gera það,“ segir hann. Þörfin á gagnsæi og skýrum reglum um stjórnarhætti sé hins vegar aldrei meiri en á endurreisnar- og umbrotatímum sem þessum. „Hvort sem okkur líkar betur eða verr fara allt of mörg fyrirtæki nú í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og lenda jafnvel í fanginu á fjármálafyrirtækjum sem um tíma að minnsta kosti eru í eigu ríkisins. Þetta er auðvitað afleitt ástand á alla kanta og býður heim þeirri hættu að stjórnarhættir verði eitthvað sérkennilegir, fyrirtækjum mögulega mismunað, fákeppnissjónarmið ekki höfð til hliðsjónar og ýmislegt annað af þeim toga. Það hlýtur því að vera sérstakt áhersluatriði hjá þeim sem halda utan um þetta ferli allt saman að reyna að sjá til þess að leiðbeiningum á borð við þessar sé fylgt.“ Í inngangi leiðbeininganna kemur fram að viðtökur við fyrri útgáfu hafi valdið nokkrum vonbrigðum. „Því miður má segja að ófarir undanfarinna missera bendi til brotalama í stjórnarháttum margra fyrirtækja, bæði hérlendis og erlendis.“ Í kynningu Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar, kom fram að leggja ætti aukna áherslu á alla eftirfylgni við að reglunum yrði framfylgt í fyrirtækjum landins. Þannig yrði haft samstarf við nýtt Rannsóknasetur um stjórnarhætti hjá Háskóla Íslands, um að greina og kanna upptöku reglnanna í fyrirtækjum landsins. Þær ættu enda víða við, ekki bara hjá skráðum fyrirtækjum. Þá kæmu þær til með að gagnast fjárfestum, stjórnarmönnum, fjölmiðlafólki og hverjum þeim sem veita vildi viðskiptalífinu aðhald. Reglurnar væru fyrsta skrefið í að koma á hugarfarsbreytingu þar sem fólk sætti sig ekki við að eiga viðskipti við fyrirtæki sem stöðugt störfuðu á „gráum svæðum“ regluverks. Þá mæltist hann til þess að ríkisstjórnin kæmi leiðbeiningunum til stjórnenda opinberra fyrirtækja.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira