Launakostnaður lækkar í verslun en hækkar í mannvirkjagerð 12. júní 2009 09:03
Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman um 1,5% í atvinnugreininni verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og um 4,8% í iðnaði og samgöngum og flutningum á milli 1. ársfjórðungs 2009 og 4. ársfjórðungs 2008. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður á greidda stund um 3,3% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna hækkaði í áðurnefndum atvinnugreinum frá fyrri ársfjórðungi. Mest var breytingin í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 6,1%. Hækkunin var minni í öðrum atvinnugreinum eða á bilinu 0,2% til 1,9%. Vísitala heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna tekur aðeins tillit til greiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hærri launakostnað á greidda stund í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð má rekja til þeirra breytinga sem hafa átt sér stað í íslensku atvinnulífi á undanförnum mánuðum. Merkjanlegur samdráttur hefur verið hvað mestur í þeirri atvinnugrein, sem til að mynda hefur birst í breytingu á samsetningu vinnuafls í greininni. Endurspeglast þær breytingar meðal annars í því að starfsfólki í lægri þrepum launastigans hefur fækkað hlutfallslega mest. Ef horft er til breytinga heildarlaunakostnaðar á greidda stund milli ára þá eru breytingar einnig mestar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem aukningin var 14,7%. Heildarlaunakostnaður jókst um 2,0% í iðnaði, 1,6% í samgöngum og flutningum en heildarlaunakostnaður í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu dróst hins vegar saman um 3,7% frá fyrra ári.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira