Viðskipti innlent

Svínaflensan hefur ekki áhrif á sölu svínakjöts á Íslandi

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Mynd/Einar
„Það hefur ekki orðið mikil breyting hér á landi í neyslu svínakjöts, neytendur eru vel upplýstir um þá staðreynd að það er ekki rétt að tengja saman neyslu á þessari afurð og þeirri svínaflensu sem nú ríður yfir heiminn," segir Hörður Harðarson, formaður félags svínabænda en sala á svínakjöti hefur aukist um rúm 7% á milli ára.

Hann segir svínin ekki bera flensuna til manna. „Frekar smitast svín af mönnum en að menn smitist af svínum."

Engin íslensk svín hafa sýkst af upprunalega stofni veirunnar sem fyrst fannst í Mexíkó í apríl síðastliðnum.

Mikið hefur dregið úr neyslu svínakjöts í Bandaríkjunum það sem af er ári og á enn eftir að minnka að mati sérfræðinga og svínabænda í Bandaríkjunum eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Ástæðuna rekja þeir til svínaflensunnar en hér á landi hefur verið mikil aukning í sölu svínakjöts.

Frá júli 2008 og fram til júlí á þessu ári hefur sala á svínakjöti aukist um 7,1% miðað við sama tímabil á undan.

„Það er því ekki að sjá á þessum tölum að umræðan um flensuna komi í veg fyrir að fólk versli svínakjöt," segir Hörður.

Aðspurður um aukna neyslu á svínakjöti hér á landi segir Hörður að verð á svínakjöti hafi verið lágt að undanförnu. „Það er meira framboð en eftirspurn á svínakjöti og það tel ég vera helstu ástæðuna fyrir lágu verði," segir Hörður.

Þar sem mikið framboð er af svínakjöti á Íslandi er eðlilegt að spyrja hvort svínabændur sjái ekki tækifæri í því að flytja svínakjöt úr landi.

„Við eigum mjög erfitt með að flytja svínakjötið úr landi þar sem svínabændur þurfa að greiða háa tolla til Evrópusambandsins. Menn hafa þreifað fyrir sér á öðrum mörkuðum eins og Rússlandi og á Asíumarkaði en það hefur komið í ljós að slíkt er ekki hagkvæmt," segir formaðurinn að lokum.






Tengdar fréttir

Svínaflensan hefur áhrif á neyslu svínakjöts

Útflutningur á svínakjöti frá Bandaríkjunum dróst saman um 20% á fyrstu sex mánuðum ársins og allt bendir til þess að fyrsta árlega niðursveiflan í útflutningi á svínakjöti síðan 1990 verði að veruleika. Sérfræðingar telja að verð á framvirkum samningum á svínakjöti gæti lækkað um þriðjung frá miðjum ágúst og fram til áramóta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×