Viðskipti innlent

Segir hrun Straums auka líkur á þjóðargjaldþroti

Thomas Haugaard hagfræðingur hjá Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn segir að hrun Straums og yfirtaka íslenskra stjórnvalda á bankanum í morgun hafi aukið líkurnar á þjóðargjaldþroti Íslands.

Í samtali við Bloomberg-fréttaveituna kemur fram að Straumur var sá síðasti af stóru bönkunum fjórum á Íslandi sem kemst í þrot.

„Hættan á raunverulegu þjóðargjaldþroti hefur aukist," segir Haugaard. „Stjórnvöld hafa nú tekið á sig meiri byrðar hvað innistæður varðar og spurningin er hvort íslenska ríkið sé nógu öflugt til að bera þær byrðar."

Straumur var með starfsemi í Danmörku. Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, Póllandi og Tékklandi. Fram kom í morgun að kauphöllin í London hefur sett Teathers, verðbréfamiðlun Straums í Bretlandi á athugunarlista í framhaldi af hruni Straums. Hinsvegar mun starfsemi Straums í Finnlandi verða með eðlilegum hætti í dag.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×