Viðskipti innlent

Brynhildur ráðin umboðsmaður hjá Kaupþingi

Brynhildur Georgsdóttir hefur verið ráðin umboðsmaður viðskiptavina hjá Nýja Kaupþingi.

Í tilkynningu um málið segir að umboðsmaður viðskiptavina Nýja Kaupþings starfar í umboði stjórnar og fylgist með að meðhöndlun mála sé í samræmi við skýrar verklagreglur og að sanngirni sé gætt við úrlausn þeirra.

Umboðsmaður yfirfer verklagsreglur og vinnuferla bankans í þeim tilgangi að byggja upp traust á starfsemi hans. Umboðsmaður mun meðal annars yfirfara úrlausn útlánavandamála fyrirtækja og tryggja að viðskiptavinum sé ekki mismunað, afgreiðsla sé gegnsæ og gætt sé að samkeppnissjónarmiðum.

Brynhildur lauk lögfræðinámi við Háskóla Íslands árið 1994 og MBA námi við sama skóla árið 2008. Brynhildur hefur víðtæka reynslu, var fulltrúi sýslumanns í Vestmannaeyjum 1994 - 1997, gæðastjóri Umferðastofu 1997 - 2000 og framkvæmdastjóri ökutækjasviðs Umferðastofu til 2006. Frá árinu 2008 hefur hún starfað hjá Mosfellsbæ, fyrst sem framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs og í framhaldinu sem verkefnastjóri eignasjóðs.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×