FME segir rakalausar dylgjur og ásakanir í Kastljósi 28. janúar 2009 16:27
Í tilkynningu á vef Fjármálaeftirlitsins segir að í Kastljósi þann 27. janúar hafi þeir Helgi Seljan og Kristinn Hrafnsson fjallað um viðskipti Roberts Tchenguiz við Kaupþing. Í umfjölluninni komu fram alvarlegar missagnir um starfsemi Fjármálaeftirlitsins og rakalausar ásakanir og dylgjur sem ekki er hægt að láta ósvarað. Síðan segir: "Kristinn Hrafnsson hélt því meðal annars fram að Fjármálaeftirlitinu bæri að hafa eftirlit með stórum lánveitingum bankanna. Einstakar lánveitingar eru viðskiptaákvarðanir sem eru á ábyrgð stjórnar og stjórnenda fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitið fylgist hins vegar með útlánaáhættu fjármálafyrirtækja og hefur í því sambandi sett ýmsar reglur og leiðbeinandi tilmæli sem þeim ber að fylgja. Kristinn Hrafnsson sagði í viðtalinu að heimildarmenn sínir hefðu gagnrýnt Fjármálaeftirlitið fyrir að draga lappirnar í rannsóknum sínum og hafa ekki nýtt allar leiðir til að afla upplýsinga. Fjármálaeftirlitið vísar þessari fullyrðingu á bug. Starfsmenn Fjármálaeftirlitsins hafa unnið hörðum höndum undanfarið við að leysa úr þeim málum sem upp hafa komið í kjölfar hruns bankanna þriggja. Þá leitar Fjármálaeftirlitið aðstoðar hjá erlendum eftirlitsaðilum þegar þurfa þykir. Helgi Seljan sendi Fjármálaeftirlitinu röð fyrirspurna, sem tengdust viðtalinu, rétt fyrir klukkan tvö síðdegis, sama dag og viðtalið var birt. Útskýrt var fyrir ritstjóra þáttarins að ekki væri hægt að svara spurningum Helga. Svör við spurningum af þessu tagi geta spillt rannsóknarhagsmunum, varðað við lög og/eða valdið frávísun mála fyrir dómstólum. Kastljós sá ekki ástæðu til að nefna þessar ástæður heldur kaus að segja að svör hefðu ekki borist. Gera verður þá kröfu til ábyrgs fjölmiðils að þegar ásakanir eru settar fram séu þær rökstuddar. Almennt þekkingarleysi á þeirri löggjöf sem Fjármálaeftirlitið starfar eftir og þeim heimildum sem eftirlitið hefur til að tjá sig lögum samkvæmt eru ekki afsökun fyrir óvandaðri umfjöllun."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira