Viðskipti innlent

Segir ESB aðild þýða eignatilfærslu í sjávarútvegi úr landinu

Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir í viðtali við The Scotsman fyrir stuttu að með aðild að Evrópusambandinu "myndi eignarhald í sjávarútvegi smám saman færast í hendur útlendinga."

Í greininni kemur fram að íslenskur sjávarútvegur og örlög hans yrði úrslitavaldur kæmi til aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins.

Fjallað er um málið á vefsíði LÍÚ. Þar segir að greinin í The Scotsman sé enn eitt dæmið um mikinn áhuga Skota á umræðunni hérlendis um Ísland og ESB. Þeirra eigin reynsla af hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu sambandsins er bitur. Sú reynsla er rakin í mjög ítarlegri grein Dr. James Wilkie, sem finna má á Evrópusambandstengli á vefsíðu LÍÚ.

Í greininni í The Scotsman er rætt við diplómata og embættismenn innan ESB. Á meðan einn telur allar forsendur fyrir "hraðferð" Íslands inn í sambandið meta aðrir það svo að brýnna sé að ljúka samþykkt Lissabonsáttmálans áður en hugað er að frekari stækkun sambandsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×