Peningamagn í umferð hefur aukist um 100 milljarða 25. júní 2009 15:57
Peningamagn í umferð hefur aukist um rúmlega 100 milljarða frá bankahruninu í haust. Samkvæmt hagtölum Seðlabankans var peningamagn í umferð í september í fyrra tæplega 440 milljarðar kr. Í október þegar bankarnir hrundu jókst þetta peningamagn upp í tæplega 585 milljarða kr. eða um 145 milljarða kr. þegar landsmenn tóku út innistæður sínar í bönkunum í stríðum straumum. Þetta hefur lítið minnkað síðan. Með peningamagn í umferð er átt við seðla, mynt og óbundnar innistæður í bönkum sem eru í notkun á landinu hverju sinni. Á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur peningamagn í umferð í hverjum mánuði sveiflast á milli rúmlega 543 milljarða kr. og upp í tæpa 562 milljarða kr. í mars s.l. Mismunurinn á mars og október á s.l. ári nemur því 122 milljörðum kr. Þar sem kaup fólks á dýrum hlutum eins og íbúðum og bílum hefur hrunið á fyrstu mánuðum ársins sem og verslun með dýrari vörur eins og heimilistæki eru allar líkur á að Íslendingar geymi þetta fé „undir koddanum" eða þá í t.d. bankahólfum og öðrum stöðum. Þá er athyglisvert að samkvæmt hagtölunum hefur peningamagn í umferð aukist gífurlega frá árinu 2006 en í desember það ár var peningamagn í umferð rúmlega 211 milljarðar kr. Í apríl í fyrra var sú tala orðin tvöföld eða um 420 milljarða kr.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira