Seðlabankinn styrkir gengið með hóflegri sölu á gjaldeyri 11. febrúar 2009 16:04
Í yfirlýsingu sem Eiríkur Guðnason bankastjóri Seðlabankans hefur sent til fjölmiðla segir að mikilvægasta viðfangsefnið nú í peningamálum er að ná því að gengi krónunnar verði sæmilega stöðugt. Að þessu er unnið í Seðlabankanum, m.a. með hóflegri sölu gjaldeyris á millibankamarkaði. Yfirlýsingin er send í tilefni af bréfi til forsætisráðherra frá í gær. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Í bréfi til mín 8. febrúar sl. segist forsætisráðherra vilja tryggja svo sem kostur er að sem minnst röskun verði á starfsemi Seðlabanka Íslands við fyrirhugaðar stjórnskipulagsbreytingar. Í svarbréfi, sem ég sendi ráðherra í gærmorgun, greindi ég frá því að ég stefni að því að biðjast lausnar frá og með 1. júní næstkomandi. Með því að gera það, fremur en að víkja tafarlaust, vil ég stuðla að þessu markmiði ráðherrans. Unnið er á mörgum vígstöðvum að því að endurreisa fjármálakerfi landsins. Það er afar mikilvægt að halda þeirri vinnu áfram og forðast allt sem tefur. Í örstuttu máli skal hér vikið að nokkrum atriðum sem snúa að Seðlabankanum. Til grundvallar stefnunnar í peningamálum um þessar mundir er efnahagsáætlun ríkisstjórnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Seðlabankinn fylgir henni að sjálfsögðu. Síðan bankahrunið varð hefur lækkun vaxta legið í loftinu því telja mátti víst að draga myndi stórlega úr eftirspurn í hagkerfinu. Nýjar upplýsingar bera einmitt með sér að það hafi gerst. Hins vegar fól efnahagsáætlun ríkisstjórnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í sér aðra stefnu að sinni - með hliðsjón af því hve mikilvægu hlutverki gengisþróunin gegnir. Eins og fram kom nýlega í riti Seðlabankans, Peningamálum, eru líkur á að vextir geti lækkað mikið á árinu. Mikilvægasta viðfangsefnið nú í peningamálum er að ná því að gengi krónunnar verði sæmilega stöðugt og styrkist nokkuð frá því sem var þegar efnahagsáætlunin var samin. Þetta er raunar það forgangsatriði sem fyrst er talið í áætluninni. Að þessu er unnið í Seðlabankanum, m.a. með hóflegri sölu gjaldeyris á millibankamarkaði. Annað mikilvægt atriði er að létta af þeim hömlum gjaldeyrisviðskipta sem í gildi eru. Stíga þarf varlega til jarðar í þeim efnum. Við myndun nýrrar ríkisstjórnar kom m.a. fram að nauðsynlegt sé að flýta gangsetningu bankanna svo þeir fái sem fyrst aðgang að Seðlabankanum og geti tekið að veita eðlilega bankaþjónustu. Endurreisn fjármálakerfisins er vitaskuld brýnt úrlausnarefni sem unnið er að á mörgum stöðum en rétt er að benda á að bankarnir hafa nú þegar aðgang að lausafé í Seðlabankanum."
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira