FME sektar Glitni um 4 milljónir vegna Birnuklúðurs 29. maí 2009 14:37
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að sekta Glitni banka hf. um 4 milljónir kr. vegna klúðursins í kringum hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur, nú bankastjóra Íslandsbanka, í Glitni árið 2007. Sektin er vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Í umfjöllun um málið á vefsíðu FME segir að þann 29. mars 2007 tilkynnti Glitnir Kauphöll Íslands um hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur í bankanum. Tilkynning var einnig send í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti. Um var að ræða kaup á 7.000.000 hlutum á genginu 26,4, samtals 184.8 milljónir kr. Bankinn hugðist veita lán fyrir kaupunum, gegn veði í bréfunum. Þegar Birna hugðist nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundi 20. febrúar 2008 kom í ljós að hún var ekki eigandi bréfanna. Fyrrnefnt lán var ekki veitt vegna villu í lánasamningi. Þar sem lánið var ekki veitt gátu viðskipti og eignartilfærsla ekki átt sér stað. Rannsókn Fjármálaeftirlitsins haustið 2008 leiddi í ljós að umrædd viðskipti gengu aldrei í gegn af ástæðum óviðkomandi Birnu og að umræddur kaupsamningur væri niður fallinn. Fjármálaeftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Glitnir hefði brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti. Þar sem leiðrétt tilkynning var ekki send, þegar mátti vera ljóst að kaup Birnu Einarsdóttur á hlutum í Glitni hefðu ekki átt sér stað. Samkvæmt lögunum ber útgefanda að tilkynna samdægurs til Fjármálaeftirlitsins þegar fruminnherji á viðskipti með fjármálagerninga útgefandans. Ber útgefanda þegar í stað að senda upplýsingar um viðskipti stjórnenda með hluti í útgefandanum, og aðra fjármálagerninga tengda þeim, til opinberrar birtingar. Með vísan til alvarleika brots, tímalengdar, þeirrar fjárhæðar sem um var að ræða, stjórnvaldssekta í sambærilegum málum var það mat Fjármálaeftirlitsins að hæfileg sekt væri kr. 4.000.000.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira