Lánasjóður sveitarfélaga skilaði 1,2 milljörðum í fyrra 9. mars 2009 11:47
Tekjuafgangur Lánasjóðs sveitarfélaga á síðasta ári nam 1.225 milljónum kr. á móti 1.219 milljónum kr. árið áður. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að afkoma 2008 hefði verið mun betri ef ekki hefði komið til niðurfærslu að verðmæti 1.472 milljónir króna vegna afleiðusamninga sem sjóðurinn hafði gert við Glitni banka. Háir vextir á innlendum markaði svo og mikil verðbólga skiluðu mjög góðri afkomu en eignir sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum. Ávöxtun á lausu fé var einnig framúrskarandi, en mestur hluti þess var varðveittur í Seðlabankanum. Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2008 voru 15.5 milljarðar kr. miðað við rúma 4 milljarða kr. á fyrra ári. Skammtímalánveitingar sjóðsins námu hinsvegar 6.1 milljarði kr. á árinu en voru 5.8 milljarðar kr. á fyrra ári. Aðstæður til töku langtímalána, bæði verðtryggðra og gengistryggðra, voru einstaklega óhagstæðar á árinu. Mikil aukning varð í eftirspurn eftir lánum hjá sjóðnum eftir fall bankanna og tókst sjóðnum að bregðast skjótt við og veita mikið af lánum á síðustu mánuðum ársins. Þar eiga lífeyrissjóðir landsins mikinn þátt sem þátttakendur í skuldabréfaútboðum sjóðsins. Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2008. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum samkvæmt lögum og reglugerðum.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira