Brotthvarf Toyota er bjarglína BMW 5. nóvember 2009 09:07 Búnaður BMW var seldur arabískum fjárfestum. mynd: kappakstur.is
Það að Toyota bílaframleiðandinn hefur ákveðið að draga sig út úr Formúlu 1 gæti verið bjarglína fyrir BMW liðið, sem hefur verið selt með manni og mús til arabískra fjárfesta. BMW liðið sem verður endurskírt Sauber Ferrari var keypt af áhugasömum fjárfestum en skorti leyfti FIA til að mæta á ráslínuna á næsta ári sem fjórtánda lið. Í ljósi þess að Toyota hættir, þá myndast pláss fyrir liðið. En FIA menn eru ekki sáttir við stjórn Toyota sem hafði skrifað undir samning um að keppa til 2012. "Toyota skrifaðu undir samning um að keppa fyrir nokkrum vikum og þarf fyrirtækið að skýra framgöngu sína og brotthvarf liðsins sýnir að áætlun FIA um að draga verulega úr kostnaði var réttmæt", segir í yfirlýsingu frá FIA. Sambandið hefur unnið ötullega að því að draga úr kostnaði og einfalda smíði bíla með nýjum reglum. Þrír bílaframleiðendur hafa dregið sig úr keppni, Toyota, BMW og Honda. Engu að síður stefnir í að 13 lið verði á ráslínunni á næsta ári í stað 10 í ár. Fjögur ný lið mæta til leiks. Lotus frá Malasíu, USF1 frá Bandaríkjunum, Manor frá Englandi og Sauber frá Sviss, ef FIA samþykkir liðið inn sem ætti að ganga snuðrulaust. Þrjú fyrrnefndu liðin verða öll með Cosworth vélar eins og Williams.
Mest lesið Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Körfubolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Fleiri fréttir Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira