Hæstiréttur dæmir 25 milljóna skaðabætur fyrir skötusel 8. október 2009 17:04
Hæstiréttur hefur dæmt ríkissjóði til að greiða útgerðinni Berghóli 25 milljónir kr., auk vaxta og dráttarvaxta árin 2003 til 2007 vegna óúthlutaðs kvóta í skötusel sem útgerðin taldi sig eiga rétt á. Málavextir eru þeir að Berghóll keypti til útgerðar bátinn Hafnarröst ÁR-250 með kaupsamningi 7. mars 2000. Með í kaupunum fylgdi skötuselsúthald af skipinu Keili GK-145, 220 til 240 net ásamt færum, drekum og baujum. Hann hafi hafið skötuselsveiðar í maí 2000 og gert út frá Þorlákshöfn. Veiðarnar hafi gengið mjög vel og skötuselsafli skips stefnanda hafi verið samtals 359.797 kg frá maí til ársloka. Stefnandi hélt áfram veiðum veturinn 2001 sem hann segir að hafi gengið sæmilega. Við úthlutun á kvóta á skötusel á næsta fiskveiðiári eftir þetta hafi sjávarútvegsráðuneytið síðan ekki tekið að fullu tillit til þeirrar veiðireynslu sem aflað hafði verið á Hafnarröstinni. Því var málið höfðað. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að Stefnandi hefur reiknað tjónið þannig að miðað er við missi á leigu eða sölu á aflahlutdeild sem hann hefði réttilega átt að fá ef tekið hefði verið tillit til veiðireynslu skipsins á tímabilinu 1. júní til 16. ágúst 2001 við úthlutun á aflaheimildum fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003. Telja verður að stefnandi hafi með þessum útreikningum og útskýringum á þeim sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir umræddu tjóni. Málsástæður stefnda um að tjónið hefði átt að meta á annan hátt eða taka tillit til kostnaðar þykja ekki nægilega rökstuddar og ber því að hafna þeim. Stefndi þykir heldur ekki hafa sýnt fram á að takmarkanir á framsali aflahlutdeildar geti haft áhrif í þessu sambandi við mat á tjóni stefnanda. Í því felst að líta verður svo á að stefnandi hafi haft heimildir samkvæmt lögunum til framsals á aflaheimildum á þann hátt sem gert er ráð fyrir í útreikningi á bótakröfu hans í málinu.
Mest lesið „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Viðskipti innlent Bætist í eigendahóp Strategíu Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Sjá meira