Viðskipti innlent

Verulega dregur úr gjaldeyrisviðskiptum SÍ

Eftir að millibankamarkaður með gjaldeyri var endurvakinn hefur dregið mjög úr gjaldeyrisviðskiptum Seðlabankans (SÍ).

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að tímabilið 4. til 31. desember seldi Seðlabankinn 12,6 milljónir evra og fékk til sín 1,5 milljónir evra. Nettósala gjaldeyris nam því 11,1 milljón evra.

Stærstur hluti þessa, eða 10,8 milljónir evra, eða rúmlega 1,7 milljarður kr., stafaði af vöxtum ríkisbréfa, í eigu erlendra aðila, sem leyft er að skipta í gjaldeyri. Seðlabankinn átti því í raun sáralítil viðskipti á gjaldeyrismarkaði á framangreindu tímabili.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×