90 milljarða krafa í Milestone Guðný Helga Herbertsdóttir. skrifar 24. ágúst 2009 18:41
Kröfur á Milestone nema um níutíu milljörðum króna. Kröfuhafar þurfa að afskrifa tæpa áttatíu og fimm milljarða ef nauðasamningar verða samþykktir. Þann 24. júní síðastliðinn veitti héraðsdómur Reykjavíkur Milestone heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína. Hálfum mánuði síðar gerði embætti sérstaks saksóknara húsleit í höfuðstöðvum Milestone, dótturfélagi þess Sjóvá, og á heimilum allra stjórnarmanna. Þeirra á meðal voru bæði Karl og Steingrímur Wernerssynir, aðaleigendur Milestone. Rannsóknin snýr að meintu stórfelldu fjármálamisferli sem tengist starfsemi Milestone og fjárfestingarstarfsemi Sjóvár, meðal annars að meintri misnotkun á bótasjóði tryggingarfélagsins. Daginn eftir að fréttir bárust af húsleitinni tilkynnti fjármálaráðherra að ríkissjóður hefði keypt 73% hlut í Sjóvá í gegnum dótturfélag Glitnis. Fyrir hlutinn greiddi ríkið 11,6 milljarða króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu nema kröfur í Milestone 90 milljörðum. Fundur verður haldinn með kröfuhöfum annan september næstkomandi þar sem nauðasamningar verða bornir undir þá. Samkvæmt þeim mun kröfuhöfum verða boðið að fá 6% af kröfum sínum greiddar í formi hlutafés auk þess sem allir kröfuhafar fá að hámarki eina milljón greidda út. Milljónin mun verða dregin frá 6 prósentunum. Kröfur í Milestone eru á sjötta tug. Glitnir er langstærsti kröfuhafinn en Kaupþing, Landsbankinn, Byr, MP banki og Straumur eiga einnig kröfur. Þá eiga fimm lífeyrissjóðir kröfur á félagið. Þeir eru LSR, Almenni lífeyrissjóðurinn, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Skjöldur.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira