Snekkjuverð snarlækkar - Kaupþing lánaði 65 milljarða Gunnar Örn Jónsson skrifar 29. júní 2009 11:14
Verð á snekkjum hefur snarlækkað síðan fjármálkreppan skall á af fullum þunga s.l. haust. Hefur verðið fallið um 30% á einstaka glæsisnekkjum á einu ári og búast sérfræðingar við að verðið lækki enn frekar. Kaupþing lánaði rúma 65 milljarða króna til snekkjukaupa. „Ef þú átt reiðufé, hefur aldrei verið betri tími til að festa kaup á snekkju," er haft eftir snekkjumiðlara en breska fjármálablaðið Financial Times greinir frá þessu. Krísan hefur komið illa niður á fjárfestingabönkum og þeim sem græddu á tá og fingri þegar verðið var sem hæst. Meðal þeirra sem hafa skaðast verulega eru fjárfestingabankar sem lánað hafa fé til slíkra snekkjukaupa. Einn af þeim er hinn gjaldþrota íslenski banki Kaupþing, segir í fréttinni. Eins og kom fram á Vísi þann 24. Nóvember s.l. lánaði Singer & Friedlander, dótturfélag Kaupþings í Bretlandi, 310 miljónir punda eða rúmlega 65 milljarða króna til kaupa á snekkjum og einkaþotum fyrir efnaða Lundúnarbúa. S&F var með „einkalánabók“ upp á 1,3 milljarða punda og taldi hún 400 viðskiptavini. Af þessari upphæð fóru 219 milljónir punda í að fjármagna snekkjukaup og 90 milljónir punda í að fjármagna einkaþotur. Auk þess kemur fram að 425 milljónir punda voru lánuð til fasteignakaupa. Þá hefur komið fram að fyrirtækjalánabók S&F var nokkuð minni að vöxtum eða upp á 824 milljónir punda. Þar af voru 16 milljónir punda lánuð til að fjármagna leikmannakaup í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira