Langtímahorfur Marels góðar 10. febrúar 2009 19:13 Hörður Arnarsson, forstjóri Marel Food Systems hf. „
Próforma rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi félagsins var 8,5% af veltu á árinu 2008 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að hann yrði 9%. Frávikið myndaðist allt á fjórða ársfjórðungi og má rekja til áhrifa alþjóðlegu fjármálakreppunnar á sölustarfsemi félagsins. Til að bregðast við breyttum aðstæðum á mörkuðum hefur þegar verið gripið til umfangsmikilla aðgerða til að lækka rekstrarkostnað félagsins. Starfsfólki hjá fyrirtækjum okkar erlendis var m.a. fækkað um 300 í lok árs og er kostnaður vegna þess gjaldfærður á fjórða ársfjórðungi," segir Hörður Arnarsson, forstjóri Marel Food Systems hf, í tilkynningu. Langtímahorfur fyrirtækisins eru góðar. Próforma sala Marel Food Systems og Stork Food Systems af kjarnastarfsemi fyrir árið nam 613,3 milljónum evra, sem er aukning um 4,4% samanborið við árið 2007, að fram kemur í tilkynningu. Próforma rekstrarhagnaður ársins fyrir einskiptiskostnað var 51,9 milljónir evra, sem er 8,5% af sölu, samanborið við 41,5 milljónir árið áður og eykst því um 25% á milli ára. „Vegna yfirtöku á Stork Food System fyrr á árinu skal, í samræmi við IFRS staðla, endurmeta vörulager fyrirtækins við yfirtöku frá innkaupsverði upp í áætlað útsöluverð. Þetta veldur einskiptis gjaldfærslu á fjórða ársfjórðungi að upphæð 9,8 milljónir evra sem hefur engin áhrif á sjóðstreymi félagsins. Einskiptiskostnaður vegna umfangsmikilla hagræðingaraðgerða var að upphæð 4 milljónir evra," segir í tilkynningunni. Nettó vaxtaberandi skuldir fyrirtækisins eru 378,2 milljónir evra. Meðallíftími skulda er um fjögur ár. Eigið fé nam 286,8 milljónum evra og eiginfjárhlutfall var 31,1% í lok árs 2008. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að velta félagsins á árinu 2009 dragist saman um 4 til 6%. Áætlað er að rekstrarhagnaður verði 10 til 12% í samræmi við markmið félagsins á seinni hluta ársins. „Mat okkar á sterkum undirliggjandi vexti í iðnaðargreininni er óbreytt. Langtímahorfur fyrirtækisins eru góðar."
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira