Viðskipti innlent

Kreditkortavelta heimila minnkaði um 18% í janúar

Kreditkortavelta heimila í heild dróst saman um 18,0% í janúar í ár miðað við janúar í fyrra. Debetkortavelta dróst saman um 3,6% á sama tíma.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar sem birtir voru í morgun. Samtals dróst innlend greiðslukortavelta heimila í janúar 2009 saman um 11,9%. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis dróst saman um 37,9% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 56,6% í janúar 2009 miðað við sama mánuð 2008.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 21,4% í janúar sem veldur 27,4% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.

Nýskráningar bíla í janúar-febrúar voru 407 sem er 88,8% fækkun frá janúar- febrúar í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði, til loka febrúar, voru nýskráningar bíla 9.075 en það er 61,6% fækkun frá fyrra tólf mánaða tímabili.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×