Spáir því að ársverðbólgan lækki í 11,3% í júlí 17. júlí 2009 11:49
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,2% í júlí. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 12,2% í 11,3%, sem er minni verðbólga en sést hefur síðan í mars 2008. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að júlí sé útsölumánuður og á greiningin von á að sumarútsölur vegi til 0,4% lækkunar á VNV. Ennfremur að áframhaldandi lækkun húsnæðisliðar vísitölunnar muni vega til 0,1% lækkunar hennar. „Á móti þessum liðum vega áhrif af gengissigi krónu undanfarna mánuði svo og nýlegri hækkun á eldsneytisgjöldum. Þannig gerum við ráð fyrir að hækkun ferða- og flutningaliðar VNV vegi til tæplega 0,3% hækkunar hennar, fyrst og fremst vegna hækkunar á opinberum gjöldum á eldsneyti en einnig vegna verðhækkunar á bifreiðum og öðrum ökutækjum.," segir í Morgunkorninu. „Verðhækkun mat- og drykkjarvöru mun að mati okkar hafa áhrif til tæplega 0,2% hækkunar á VNV og aðrir innflutningsdrifnir liðir hækka vísitöluna um ríflega 0,1% til viðbótar. Áhrif þeirra liða sem út af standa eru minni." Þótt enn séu horfur á allhraðri hjöðnun verðbólgu hefur dregið nokkuð úr bjartsýni greiningarinnar á að hún verði orðin í takti við nágrannalönd Íslands þegar nýtt ár heilsar. Þó eru í raun aðeins tveir þættir sem þrýsta vísitölu neysluverðs upp á við þessa dagana; gengisfall krónu og hækkun neysluskatta. Veiking krónunnar, og ekki síður vaxandi vantrú á að styrking hennar sé í vændum á næstunni, hefur orðið til þess að hækka verð innfluttra vara allhratt undanfarna mánuði og sér ekki fyllilega fyrir endann á þeirri verðhækkun enn.„Það sem eftir lifir árs teljum við að VNV muni hækka um 2,3%. Spá okkar gerir ráð fyrir að 12 mánaða verðbólga mælist 5,5% í upphafi næsta árs en að VNV sé líklegri til að lækka en hækka á komandi ári. Hækkun neysluskatta, sem ekki er gert ráð fyrir hér vegna mikillar óvissu um stærðargráðu og tímasetningu, gæti þó sett hér strik í reikninginn," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Vill að Alþingi skipi rannsóknarnefnd vegna forsætisráðherra Viðskipti innlent Launin reyndust tæp hálf milljón á mánuði Viðskipti innlent 60 kílómetrar af Glamour komið í verslanir Viðskipti innlent Nýtt sportvörumerki hristir upp í markaðnum Samstarf Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO Samstarf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira