Skuldatryggingarálag lækkaði við fréttir um ESB viðræður 17. júlí 2009 11:21
Skuldatryggingarálag á ríkissjóð lækkaði talsvert í gær í kjölfar frétta um að Alþingi hefði samþykkt aðildarviðræður við ESB. Álagið fór úr 660 punktum í upphafi dags í 624 punkta í dagslok samkvæmt gögnum frá Bloomberg. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í frétt á Reuters, þar sem fjallað var um lækkandi skuldatryggingarálag íslenska ríkisins, var það tekið fram að viðskipti með skuldatryggingar á ríkissjóð hefðu verið líflegri í eftirmiðdaginn en um morguninn. Hreyfingin á skuldatryggingum ríkissjóðs var einnig úr takti við almennt verð á skuldatryggingum, sem yfirleitt stóð í stað eða hækkaði nokkuð í gær. Þetta bendir til þess að einhverjir á markaði telji ríkissjóð nú heldur áreiðanlegri skuldara í erlendri mynt en áður. Þó verður að hafa í huga að dagsveiflur í verði skuldatrygginganna geta verið talsverðar og tíminn mun leiða í ljós hvort lækkunin í gær er komin til að vera. Erlendis virðast þeir aðilar sem aðkomu hafa að Íslandi í einhverjum mæli á fjármálamörkuðum flestir hafa tekið tíðindunum með ró. Aflandsgengi krónu gagnvart evru hefur til að mynda ekki breyst í miðlunarkerfi Reuters frá því fyrir atkvæðagreiðsluna. Telja ýmsir á erlendum mörkuðum að fréttir af endurskipulagningu bankanna og sér í lagi afléttingu gjaldeyrishafta muni skipta meiri sköpum fyrir traust á Íslandi næsta kastið en ESB-umsóknin.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira