Viðskipti innlent

Greiðslustöðvun afturkölluð til að lágmarka tjón

Ákvörðun um að afturkalla beiðni um greiðslustöðvun hjá BG Holding hér á landi var tekin til að lágmarka tjón í rekstri fyrirtækja í eignasafni Baugs. Ákvörðunin um afturköllun beiðni BG Holding mun engin áhrif hafa á aðrar umsóknir Baugs eða dótturfélaga þess.

 

Stjórnir Baugs Group hf ("Baugur") og BG Holding ehf ("BG Holding") ákváðu að andmæla ekki beiðni Landsbanka Íslands hf um greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi sem tekin var fyrir hjá breskum dómstól High Court of Justice fyrr í dag. Þá hefur verið ákveðið að draga til baka beiðni um heimild BG Holding til greiðslustöðvunar félagsins hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

 

"Í kjölfar hruns íslensku bankanna, hefur forgangsverkefni okkar verið að vernda félögin í eignasafninu og að lágmarka truflun á rekstri félaganna sem og óþægindi fyrir starfsmenn og aðra hagsmunaðila," segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group í tilkynningu um málið.

 

„Ákvörðun Landsbanka Íslands var okkur mikil vonbrigði. Að okkar mati voru tillögur okkar að endurskipulagninu traustar og til þess fallnar að hámarka endurheimtur verðmæta fyrir alla hagsmunaðila Baugs og dótturfélaga þess.

 

Með tilliti til hagsmuna félaganna í eignasafni okkar, höfum við ákveðið að andmæla ekki greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi og munum vinna með skilanefnd Landsbankans og veita allan mögulegan stuðning til fyrirtækjanna. Eignasafnið inniheldur sterk vörumerki og frábær stjórnendateymi, sem eru vel í stakk búin til að byggja á styrkleikum sínum um komandi ár."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×