Háir innlánsvextir auka áhættusækni banka 6. júlí 2009 11:28 Þúsundir Breta lögðu sparifé sitt inn á Icesave reikninga Landsbankans.
Bandarískir bankar sem boðið hafa háa vexti á innlánum sínum standa nú margir hverjir frammi fyrir verulegum vanda. Ástæðan fyrir vandanum eru svokallaðir heitir peningar (e. hot money). Heitir peningar eru innstæður á hávaxtareikningum sem síðan eru lánaðir til áhættusamra verkefna. Á undanförnum tveimur árum hafa 79 bandarískir bankar farið í þrot og höfðu þeir hlutfallslega fjórfalt meiri innstæður en meðalbanki og þriðjungur af þeim bönkum óx mjög hratt. Þessar innstæður greiða vexti sem eru um tuttugu prósentum hærri en gengur og gerist þannig að verulegir fjármunir streyma til bankanna sem bjóða bestu kjörin fyrir sparifjáreigendur. Þegar bankarnir lenda síðan í einhverjum skakkaföllum streyma fjármunirnir jafnvel hraðar út úr bönkunum en er þeir komu inn. Þetta kemur fram í grein á dailyfinance.com. Slíkar innstæður gera það að verkum að bankarnir verða að endurlána þessa peninga fyrir hærri vexti en þá sem bankinn greiðir innstæðueigendum sínum. Það getur reynst þrautin þyngri. Bankarnir taka því meiri áhættu til að sitja ekki uppi með slíka fjármuni og endurlána því þessa peninga í áhættusöm verkefni sem skila þar af leiðandi miklum vaxtatekjum. Fjárfestingabanki í nágrenni Atlanta jók innlán sín úr 693 þúsund dölum árið 2000 í 798 milljónir dala árið 2008. Aukningin nemur því rúmlega 115 þúsund prósentum! Bankinn lánaði peningana í fasteigna- og lóðarkaup. Lánin voru arðsöm í fasteignabólunni og árið 2007 námu þessi lán 53 prósentum af lánasafni bankans. Margir bankar hafa farið flatt á slíkum innlánssöfnunum þó staða þessa ákveðna banka í Atlanta fylgi ekki sögunni. Umfjöllun blaðsins heldur áfram. Heitir peningar eru vandamál alls staðar í heiminum. Í október síðastliðnum aðstoðuðu þeir við að hrun bankakerfis heillrar þjóðar þegar íslenskir bankar höfðu safnað gríðarlegum innlánum og greiddu svimandi háa vexti af þeim. Er þá sérstaklega minnst á Icesave reikninga Landsbankans. Íslensku bankarnir endurlánuðu féð í áhættusamar fjárfestingar sem greiddu að jafnaði hærri vexti en bankarnir buðu sínum sparifjáreigendum. Hrun íslensku bankanna hófst síðan í kjölfarið á falli amerískra banka og ballið var búið þegar bandaríski bankinn Lehmann Brothers fór í þrot í september síðastliðnum. Afganginn þekkjum við Íslendingar en hvernig sú saga endar á enn eftir að koma í ljós.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira